Fimmgangsmót í Herði
Hestamannafélagið Hörður
Býður upp á innanhús mót í F1 tilvalinn vettvangur fyrir keppendur í öllum deildum til að hita sig upp.
En að sjálfsögðu er öllum velkomið að taka þátt.
þrír dómarar munu dæma mótið og verður í boði að fá dómarablöð að móti loknu þar sem ritarar munu taka niður comment dómara eftir bestu getu.
Í boði verður upphitunar aðstaða í Blíðubakka höllinni en hún er í aðeins 150 m fjarlægð frá reiðhöll Harðar.
Aðeins er riðin forkeppni og ekki verða veitt verðlaun.
Athygli er vakin á því að dagskrá gæti hafist fyrr ef þátttaka er mikil.
Mótið er opið fyrir Barnaflokk og uppúr.
Þáttökugjald er 5.000-kr
Skráningu fer fram í gegnum sportfeng og líkur á miðnæti fimmtudaginn 15.febrúar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts