Fimmgangur í KS-deildinni á miðvikudag
Keppt verður í fimmgangi í KS deildinni á miðvikudaginn 7.mars. Keppnin hefst kl. 20 í Svaðastaðahöllinni. Aðgangseyri krónur 1500. Flestir knapar eru á hrossum sem eru ennþá að stíga sín fyrstu spor. Nokkrir kunnir gæðingar eru þó á ráslistanum og má þar nefna Hnokka frá Þúfum, sem Mette Mannseth keppti á í A úrslitum í A flokki gæðinga á LM2011, og Sýn frá Grafarkoti, en það er Fanney Dögg Indriðadóttir sem keppir á henni. Magnús B Magnússon er skráður með Vafa frá Ysta-Mó.
Ráslisti:
1. Erlingur Ingvarsson Hátíð frá Syðra Fjalli
2. Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu
3. Sölvi Sigurðarson Kristall frá Hvítanesi
4. Fanney Dögg Indriðad Sýn frá Grafarkoti
5. Elvar Einarsson Starkaður frá Stóru Gröf Ytri
6. Viðar Bragason Sísí frá Björgum
7. Magnús B Magnússon Vafi frá Ysta Mó
8. Ólafur Magnússon Ódeseifur frá Möðrufelli
9. Elvar Logi Friðriksson Ræll frá Gauksmýri
10. Tryggvi Björnsson Rammur frá Höfðabrekku
11. Ísólfur L Þórisson Kvaran frá Lækjamóti
12. Þorsteinn Björnsson Kylja frá Hólum
13. Þórarinn Eymundsson Seiður frá Hörgslandi
14. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum
15. Þorbjörn H Matthíasson Dýa frá Litla Dal
16. Sveinn B Friðriksson Glaumur frá Varmalæk
17. Baldvin Ari Guðlaugsson Jökull frá Efri Rauðalæk
18. Bjarni Jónasson Djásn frá Hnjúki
Eftir fyrsta mót (fjórgang) er staða níu efstu knapa þessi:
1 Ísólfur Líndal 10
2 Ólafur Magnússon 8
3 Sölvi Sigurðarson 7
4 Bjarni Jónasson 6
5 Baldvin Ari Guðlaugsson 5
6 Fanney D Indriðadóttir 4
7 Þórarinn Eymundsson 3
8 Mette Mannseth 2
9 Viðar Bragason 1
Stjórn MN
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH