Firmakeppni Gnýfara
Firmakeppni hestamannafélagsins Gnýfara verður haldin laugardaginn 20. ágúst n.k. kl. 14 á velli félagsins í Ólafsfirði, að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd félagsins.
„Skráning keppenda fer fram á staðnum og skal henni lokið kl. 13.15. Félgsmenn Gnýfara eru minntir á karla- og kvennareið sem farnar verða seinni part þess 20.08. Uppl. veita Jónas Baldurs í s. 864-4355 og Kristín Andresar í s. 866-2115.“
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV