Fit2Ride
Viltu ná meiri árangri með aukinni líkamsvitund til þess að ná settu marki?
FT – Suður býður upp á námskeið með Søs Fejerskov-Quist í Dallandi helgina 12-13 apríl.
Søs sérhæfir sig í líkamsbeitingu knapa og hefur um árabil náð góðum árangri með fjölda knapa, þekki vel til íslenska hestsins og hefur meðal annars unnið með Nils Christian Larsen. Sos hefur gefuð út bók sem kallast “I balance på hesteryg” sem byggir á þjálfunarkerfi sem hún hefur, í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, þróað. Kerfið kallast Fit2Ride er hannað til þess að þjálfa knapa til þess að verða betri íþróttamaður. Jafna eigin misstyrk, styrkja líkamann rétt með tilliti til reiðmennsku og lágmarka slit.
Námskeið þetta er byggt upp til að nýtast fagfólki sem mest. Bæði til þess að undirbúa sig fyrir sýningar og keppnistímabilið og til þess að auka við hugmyndafræði sem nýtist áfram í kennslu.
Opin skráning fyrir alla hestamenn og konur!
Dagskrá:
Laugardagur
Fyrir hádegi: Fyrirlestur og æfingar í Ormsstofu
Eftir hádegi: Reiðtímar og sýnikennsla
Sunnudagur:
Fyrir hádegi: „Body screening“ þar sem farið er í gegnum líka hvers knapa. Hver knapi fær þjálfunar áætlun.
Eftir hádegi: Reiðtímar og sýnikennsla
Pláss er fyrir 10 knapa
Boðið er upp á pláss fyrir 15 manns sem sækja laugardaginn, taka þátt í æfingunum og fylgjast með reiðtímum í formi sýnikennslu.
Námskeiðsgjald fyrir alla helgi 35.000 kr
Námskeiðsgjald fyrir þáttöku á laugardegi 12.000 kr
Hádegismatur og kaffi innifalið
Nánari uppýsingar og skráning á facebook síðu Félags tamningamanna. Nánari upplýsingar í síma 865 4239 (Karen)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH