Fjölbreytt dagskrá Hestadaga í Reykjavík-
Hestadagar í Reykjavík verða haldnir í annað sinn dagana 29. mars – 1. apríl nk.
Dagskráin verður fjölbreytt, boðið verður upp á kynbótaferðir, hestasýningar og keppnir, ljósmyndasýningar, kvikmyndasýningar, málþing, tónleika og sýnikennslur að ótaldri hinni hátíðlegu skrúðreið, en í fyrra tóku 180 hestamenn og jafnmörg hross þátt og settu þau mikinn svip á miðborgina eins og sjá má hér.
Meðfylgjandi er dagskrá hátíðarinnar og kynningarmyndaband.
Fimmtudagur 29. mars:
• Ljósmyndasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur – Hestar í sögu Reykjavíkur
• Reiðtúr í Hafnarfjarðarhrauni og kjötsúpa á eftir
• Hestabíó
• Sýnikennsla og fræðsla í Fáki – landsmótssvæðið 2012 heimsótt
• SETNING HESTADAGA Í REYKJAVÍK Á HÓTEL REYKJAVÍK NATURA – Tískusýning, tónlist o.fl.
• Reykjavík city – pöbbastemning…
Föstudagur 30. mars:
• Ferð á ræktunarbú á Suðurlandi – Lagt af stað kl. 10:00 frá BSÍ
• 19:30 Meistaradeildin í Ölfushöll
Laugardagur 31. mars:
• 10:00 Málþing um íslenska hestinn
• 12:00-14:00 Teymt undir börnum á Ingólfstorgi
• 13:00 Skrúðreið í miðbænum – 150 hestar og knapar!
• 14:00 Línudanskennsla í Ráðhúsinu
• 15:00 Fyrirlestur Ingimars Sveinssonar um fóðrun og atferli hrossa
• 16:00 Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á Hressó / Ráðhúsi?
• 19:30 Ístölt „Þeir allra sterkustu“ í Skautahöllinni í Laugardal
Sunnudagur 1. apríl:
• 13:00 Æskan & hesturinn – fjölskyldusýning í Reiðhöllinni í Víðidal, frítt inn
• 16:00 Æskan & hesturinn – fjölskyldusýning í Reiðhöllinni í Víðidal, frítt inn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH