Fjölhæfir ungir knapar
Mikið var um dýrðir á stórsýningunni Æskan og hesturinn sem haldin var í reiðhöllinni í Víðidal á sunnudaginn var, 1. apríl.
Ríflega hundrað börn og unglingar komu fram á þessari stórskemmtilegu sýningu í hinum ýmsu hlutverkum, yngsta kynslóðin klædd upp í litríka búninga voru teymd undir traustum fákum, unglingar spreyttu sig í smalabraut, stúlkur úr hestamannafélaginu Herði sýndu hindrunarstökk, Fáksstelpur spiluðu hestaknattleik, unglingalandsliðið U21 var með gangtegundakynningu og nokkar fimar stúlkur úr hestamannafélaginu Þyt sýndu fjölhæfni sína í fimleikum á hesti og svo mætti lengur telja.
Myndir frá sýningunni má nú nálgast hér á ljósmyndasafni Eiðfaxa.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV