Fjölmennar kappreiðar á Ólafsvöku í Færeyjum

  • 3. ágúst 2021
  • Fréttir

Mynd frá kappreiðum á Ólafsvöku Ljósmynd/In.fo

Kappreiðar eru stór hluti af hátíðarhöldum og menningu Færeyinga á hátíðinni Ólafsvöku, sem haldin er ár hvert í lok júlí. Í ár eru 100 ár frá því að kappreiðarnar voru fyrst haldnar árið 1921 og af því tilefni voru kappreiðarnar í ár sérstaklega hátíðlegar og vel sóttar. Rúmlega 800 manns voru mættir til að fylgjast með og þátttakan var góð. Keppt er í ýmsum flokkum og vegalengdum í stökki auk brokk- og skeiðkappreiða þá er einnig keppt í 100 metra tölti.

Samkvæmt vefsíðunni in.fo voru sigurvegarar eftirfarandi.

Í tölti var það Regin Johannssen á Brynjar sem sigraði á tímanum 11.53 sekúndum. Besti tíminn í 100 metra skeiði var 8,38 sekúndur en hann átti hesturinn Kór sem sýndur var af  Beintu P. Debes. Brokkkappreiðarnar sigraði Laila Christiansen á Tango en þau voru þau einu af fjórum keppendum sem náðu að brokka 250 metrana án þess að fipast. Í 250 metra stökki unglinga var það Birna Jóannesarson sem fór á tímanum 17,85 sekúndum á hestinum Frey.

Keppt er í tveimur flokkum í 500 metra stökki. Í öðrum flokki var það Oskar í Haraldstovu sem sigraði á Mætti en ekki er tekið fram hver tími þeirra var. Í flokki 1 er jafnan mesta spennan hver fer með sigur og í ár var það hryssan Ronja og Zacharias R. Jacobsen sem fóru 500 metra áa 35,11 sekúndum.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link