Fjölmennum á FM Austurlands

  • 16. júní 2013
  • Fréttir
Fjölmennum á FM Austurlands

„Fjórðungsmót Austurlands hefst næstkomandi fimmtudag. Mótið stendur yfir dagana 20. – 23.  júní að Fornustekkum í Hornafirði. Skráningum lauk í gær og eru margir góðir gæðingar og knapar skráðir til leiks í öllum flokkum. Landsmótssigurvegararnir  Tónn frá Melkoti og Kári Steinsson mæta, Krít frá Miðhjáleigu og Leó Geir,  Klerkur frá Bjarnanesi og Eyjólfur Þorsteinsson,  Flans frá Víðivöllum fremri og Hans Kjerúlf, Sámur frá Sámsstöðum og Höskuldur Jónsson, Ásgerður frá Horni og Ómar Ingi, ásamt svo mörgum fleirum glæstum gæðingum.

Til mikils er að vinna í opnu flokkunum en peningaverðlaun eru í boði fyrir efsta sæti.

Veðurspáin er góð fyrir helgina og tilvalið að skella sér í útilegu með fjölskylduna, horfa á góða hesta, sjá hvað ræktunarbúin hafa upp á að bjóða og fyrir þá sem vilja er Skógeyjarútreiðin á dagskrá en hana kannast margir við.
Aðgöngumiði: 7500 kr. (tjaldstæði innifalið og ball í göngufæri með hljómsveitinni Stuðlabandinu.)
Aðgöngumiði fyrir börn 12-16 ára: 3000 kr. (frítt fyrir 12 ára og yngri)
Dagpassi: 3000 kr.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link