Fjölskyldudagur á Ingólfshvoli
Leó Geir er í liði Spónn.is og Heimahaga
Lið Spónn.is & Heimahaga bjóða til opins fjölskyldudags á Ingólfshvoli sunnudaginn 2. febrúar kl:15:30. Ingólfshvoll verður í fyrsta sinn opið fyrir almenning og gefst gestum kostur á að kynna sér þær glæsilegu breytingar og það stórkostlega sjónarspil sem sýningar á Ingólfshvoli munu hafa uppá að bjóða.
Dagskrá dagsins er eftirfarandi:
Lið Spónn.is og Heimahaga verður kynnt til leiks.
Sýnikennsla – Guðmar Þór og Ísólfur Líndal munu bjóða uppá áhugaverða sýnikennslu þar sem þeir félagar ljóstra upp sínum helstu atvinnuleyndarmálum..
Vonarstjörnur vetrarins – Ævar Örn og Leó Geir kynna nokkur af þeim keppnishrossum sem mögulega taka þátt í Meistaradeildinni í vetur.
Ástund verður með kynningu á nýjum tímamóta hnakk, Wakanda, en það er keppnishnakkur liðsins í vetur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH