Fjórðungsmót – Dagskrá dagsins
Frá setningarathöfn mótsins
Fjórði dagur Fjórðungsmótsins fer fram í dag í Borgarnesi og veðrið er hreint út sagt frábært sem og veðurspáin.
Landssýning kynbótahrossa er fyrsti dagskráliður dagsins en þar munu hæst dæmdu hross vorsýninga leika listir sýnar og verða verðlaunuð.
Að Landssýningui lokinni taka við B-úrslit í A- og B-flokki gæðinga og í kvöld verður svo kvöldvaka haldin með pompi og prakt. Dj Siggi Hlö treður svo upp í reiðhöllinni og þar verður glatt á hjalla.
Laugardagur
10:30 Landssýning
12:00 Matarhlé
13:30 Landssýning frh.
16:30 B-úrslit A- og B-flokkur
18:00 Matarhlé
19:00 Kvöldvaka:
19:00 A-úrslit Tölt T3 U-17
19:30 100 m fljúgandi skeið – báðir sprettir
20:00 Sigurvegararar ræktunarbúa og Ræktunarbú ársins
20:30 A-úrslit Tölt T3 opinn fl.
21:00 A-úrslit Tölt T1
21:45 DJ Siggi Hlö í reiðhöll
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH