Fjórðungsmót – Lokaundirbúningur
Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúning fyrir FM2013 á Hornafirði, en veðrið hefur leikið við starfsfólk í allan dag.
Veðurspáin er góð fyrir næstu daga og aðstaða á Fornustekkum að flestu leiti hin ákjósanlegasta.
Dagskráin hefst á föstudagsmorgun með sýningu kynbótahrossa en í kjölfarið hefst keppni í íþróttahluta mótsins.
Stemmningin í Hornfirðingum er lágstemd en góð og líklegt er að þetta verði skemmtilegt Fjórðungsmót upp á gamla mátan þar sem mannlegi þátturinn spilar ekki síður stóra rullu en hestakosturinn.
Á laugardaginn verður svo dansleikur með Stuðlabandinu.