Fjórtán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2019

  • 21. október 2019
  • Fréttir

Hrossarækt

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins

Valið stóð á milli 30 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 14 í ár. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2019 sem haldin verður á Hótel Sögu laugardaginn 2. nóvember næstkomandi og byrjar kl. 14:00. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem einnig verður haldin á Hótel Sögu um kvöldið.


Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:

Fet, Karl Wernersson
Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
Hlemmiskeið 3, Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir
Hólabak, Björn Magnússon
Höfðabakki, Sigrún Kristín Þórðardóttir og Sverrir Sigurðsson
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Rauðalækur, Eva Dyröy, Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Kristján G. Ríkharðsson
Stóra-Hof, Bæring Sigurbjörnsson og Kolbrún Jónsdóttir
Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
Strandarhjáleiga, Sigurlín Óskardóttir, Þormar Andrésson og fjölskylda
Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með frábæran árangur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link