Fleiri frábær atriði á Ræktunardegi Eiðfaxa
Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur frá Vatnsenda Mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir
Ræktunardagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 9.maí og hefst hann klukkan 14:00. Undirbúningur í fullum gangi, mikill áhugi er meðal ræktenda og stóðhestaeigenda að taka þátt og nú þegar hafa hrossaræktarbú og stóðhestar boðað komu sína. Eins og staðan er núna spáir glaða sólskini þennan dag.
Hér fyrir neðan kynnum við nokkur af þeim atriðum sem staðfest hafa mætingu.
Eins og áður hefur verið auglýst mun verða sýnt beint frá deginum um heim allan og verður honum lýst á þremur tungumálum íslensku, þýsku og ensku.
Hreyfill frá Vorsabæ II fer vel af stað sem ræktunarhestur. Þrír synir hans munu mæta á ræktunardaginn sem fulltrúar föður síns. Þetta eru þeir Hraunar og Ganti frá Vorsabæ II og Hilmir frá Hamarsey Allir hafa þessi hestar hlotið glæsilegan kynbótadóm sem klárhestar og verður gaman að sjá þá saman á Hvammsvellinum.
Hrossaræktarbúið Þjórsárbakka að Þjórsárbakka stundar Haraldur Þorgeirsson hrossarækt en frá búinu hafa komið eftirtektarverð hross á undanförnum árum sem flest eiga það sameiginlegt að vera út af gæðingamóðurinni Eldingu frá Hóli. Fulltrúar Þjórsárbakka munu mæta í sólina í Víðidalnum þann 9.maí og megum við vænta þess að sjá frábær klárhross og má þar nefna stóhestinn Ísak frá Þjórsárbakka sem hefur m.a. hlotið 9,5 fyrir háls,herðar og bóga og tölt og stökk.
Frábærir stóðhestar. Margir frábærir stóðhestar munu einnig koma fram bæði alhliðahestar og klárhestar á meðal þeirra má nefna Vák frá Vatnsenda sem er einn af frambærilegustu klárhestum landsins bæði sem keppnis- og kynbótahestur en hann og Ragnhildur Haraldsdóttir hafa vakið verðskuldaða athygli hvar sem þau sjást.
Nói frá Saurbæ er frábær alhliðagæðingur sem hefur gert það gott bæði í gæðinga- og íþróttakeppni sem og í kynbótadómi. Eigandi hans og knapi er Sina Scholz og ætla þau að koma suður um heiðar og sýna snilli sína í Víðidalnum á ræktunardegi Eiðfaxa.
Fleiri atriði verða kynnt hér á vef Eiðfaxa næstu daga.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að taka þátt í ræktunardegi Eiðfaxa er bent á að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH