Fleiri hross í nærmynd

  • 19. janúar 2013
  • Fréttir
Fleiri hross í nærmynd

Eiðfaxi heldur áfram að bjóða lesendum sínum upp á greinar af hrossum, sem á einn eða annan hátt, hafa vakið athygli og eftirtekt.

Við höfum nú bætt inn sögulegum greinum, hugljúfum sögum og öðrum dramatískari.
 
  • Hera frá Laugavatni er ein af mestu ættmóður íslenska hestakynsins en undan henni er heill ættbogi gæðinga sem hafa komið víða við.
  • Hraunar frá Sauðárkróki var mikil vonarstjarna enda undan tveimur stórstjörnum, þeim Hrafnkötlu frá Sauðárkróki og Ófeigi frá Flugumýri. Ferill hans varð hins vegar styttri en vænta mátti en út frá honum leynast sannir gullmolar.
  • Bræðurnir og Hornfirðingarnir Skúmur og Léttir frá Stórulág hefðu eflaust sett mark sitt á íslenska hrossarækt, hefðu þeir verið graðir. Þeir voru báðir landsfrægir afrekshestar og er farið yfir feril þeirra.
  • Þá er ferill tímamótahestsins Hrímnis frá Hrafnagili tekinn fyrir af Valdimar Kristinssyni.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link