Flott ræktunarbú
Nú rétt í þessu var að ljúka Rækrunarbúasýningum hér á FM2013 en það voru fjögur bú sem sýndu hross úr sinni ræktun. Það voru Horn, Tjarnarland, Bjarnanes og Lækjarbrekka í Nesjum.
Fulltrtúar frá öllum hestamannafélögum sem standa að Fjórðungsmótinu voru saman í dómnefnd og kusu flottasta búið, en það var Ræktunarbúið Horn sem hlut nafnbótina Flottasta búið.
Nú er að hefjast A-úrslit bæði í opnum flokki og áhugamannaflokki.
Svo er dansleikur í kvöld í Mánagarði þar sem Stuðlabandið leikur fyiri dansi langt fram eftir nóttu.