Flottur hestakostur á Ræktun
Nú er Ræktun 2022 að bresta á. Mikið af frábærum gæðingum eru búnir að tilkynna komu sína og lítur dagskráin vel út. Húsið í Fákaseli opnar kl 18.00 og inn í salinn kl 19.00
Silli Kokkur mætir með vagninn og býður upp Hreindýra og Nautaborgara.Miðasala fer mjög vel af stað og stefnir í frábæra stemningu í Fákaseli á laugardagskvöld.
Sýningin hefst kl. 20:00 og fer forsala miða fram í Baldvin og Þorvaldi, Líflandi á Hvolsvelli og Reykjavík. Einnig verður miðasala við innganginn.
Tilvalið að skella sér á frábæra sýningu á mörgu af því besta sem sunnlenskir hestamenn hafa uppá að bjóða.
Miðaverð er kr. 3.500 frítt fyrir 12 ára og yngri
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hraði sigurvegari A-flokks á Norðurlandamóti