Landsmót Flugeldasýning í elsta flokki stóðhesta

  • 7. júlí 2026
  • Fréttir

Safír frá Laugardælum, sýnandi Jakob Svavar Sigurðsson

Þá er dómum lokið en yfirlitssýningar fara fram á morgun og fimmtudag.

Síðasti flokkurinn var flokkur stóðhesta 7 vetra og eldri og þvílíka flugeldasýningin.

Safír frá Laugardælum átti stjörnusýningu og setti heimsmet þar hann hlaut 9,13 í aðaleinkunn sem er hæsti dómur sem hross hefur hlotið frá upphafi dóma. Hlaut hann fyrir hæfileika 9,28. Þar af 9,5 fyrir tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, greitt stökk, hægt stökk og hægt tölt. Safír er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Skart frá Laugardælum. Ræktandi er Malin Widarsson en eigendur eru Fákshólar ehf. og Anja Egger-Meier.

Annar í röðinni er Agnar frá Margrétarhofi með 8,81 í aðaleinkunn. Hann hlaut fyrir hæfileika 8.87 og var með 8.71 fyrir sköpulag. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, brokk, greitt stökk og fegurð í reið. Agnar er 8 vetra undan Ölni frá Akranesi og Garúnu frá Garðshorni á Þelamörk. Ræktendur og eigendur eru Margrétarhof ehf en sýnandi er Þorgeir Ólafsson

Gauti frá Vöðlum er þriðji í röðinni með 8,79 í aðaleinkunn. Hann hlaut fyrir hæfileika 8,99 og fyrir sköpulag 8,42. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, skeið og samstarfsvilja og 9,0 brokk, hægt tölt og fegurð í reið. Hann er undan Glað frá Prestsbakka og Nótt frá Oddsstöðum I. Ræktendur er Margeir Þorgeirsson og eigendur Anja Egger-Meier og Kronshof GbR. Sýnandi var Teitur Árnason

Tíur í röðum

Aspar frá Hjarðartúni hlaut fjórar 10,0 fyrir einstaka eiginleika. Hlaut hann 10 fyrir tölt, brokk, stökk og hægt tölt. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,79 og fyrir sköpulag hafði hann hlotið 8,54 sem gerir 8,70 í aðaleinkunn. Aspar er undan Boða frá Breiðholti, Gbr. og Hrund frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandi er Óskar Eyjólfsson en hann er jafnframt eigandi ásamt Birgittu Bjarnadóttur og Þorgeir Ólafsson en hann sýndi hestinn.

Baldvin frá Margrétarhofi, tölti í fótspor föður síns Kveiks frá Stangarlæk, og hlaut 10 fyrir tölt. Hann hlaut í aðaleinkunn 8,67, fyrir hæfileika 8,84 og fyrir sköpulag 8,36. Móðir Baldvins er Gletta frá Margrétarhofi en ræktendur eru Margrétarhof hf. og eigandi er Anja Egger-Meier. Sýnandi er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir.

Ítarleg dómaskrá
IS2019187322 Safír frá Laugardælum
Örmerki: 352098100080014
Litur: 62400 Fífilbleikur tvístjörnóttur
Ræktandi: Malin Widarsson
Eigandi: Anja Egger-Meier, Fákshólar ehf.
F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti
Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum
M.: IS2012287320 Skart frá Laugardælum
Mf.: IS2003181962 Ómur frá Kvistum
Mm.: IS2005287321 Stroka frá Laugardælum
Mál (cm): 146 – 131 – 137 – 64 – 141 – 39 – 48 – 43 – 6,8 – 29,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,5 – V.a.: 8,6
Sköpulag: 9,0 – 8,5 – 9,0 – 9,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 = 8,83
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,5 – 8,5 = 9,28
Hægt tölt: 9,0Aðaleinkunn: 9,13
Hæfileikar án skeiðs: 9,25
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,10
Sýnandi: Jakob Svavar Sigurðsson
Þjálfari:
IS2018101038 Agnar frá Margrétarhofi
Örmerki: 352098100087671
Litur: 15000 Rauður
Ræktandi: Margrétarhof hf
Eigandi: Margrétarhof hf
F.: IS2009135006 Ölnir frá Akranesi
Ff.: IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu
Fm.: IS2000235006 Örk frá Akranesi
M.: IS2011264068 Garún frá Garðshorni á Þelamörk
Mf.: IS2005156292 Dofri frá Steinnesi
Mm.: IS1987238711 Sveifla frá Lambanesi
Mál (cm): 145 – 133 – 138 – 64 – 139 – 37 – 47 – 42 – 6,7 – 30,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,7
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,71
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 8,0 – 9,5 – 9,0 – 8,5 = 8,87
Hægt tölt: 8,5Aðaleinkunn: 8,81
Hæfileikar án skeiðs: 8,94
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,86
Sýnandi: Þorgeir Ólafsson
Þjálfari:
IS2018186733 Gauti frá Vöðlum
Örmerki: 352206000127923
Litur: 75000 Móálóttur
Ræktandi: Margeir Þorgeirsson
Eigandi: Anja Egger-Meier, Kronshof GbR
F.: IS2009185070 Glaður frá Prestsbakka
Ff.: IS2000165607 Aris frá Akureyri
Fm.: IS1995285030 Gleði frá Prestsbakka
M.: IS1997235719 Nótt frá Oddsstöðum I
Mf.: IS1992156455 Skorri frá Blönduósi
Mm.: IS1987235714 Njóla frá Oddsstöðum I
Mál (cm): 147 – 134 – 139 – 64 – 139 – 35 – 47 – 43 – 6,4 – 28,5 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 7,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 = 8,42
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 8,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,0 = 8,99
Hægt tölt: 9,0Aðaleinkunn: 8,79
Hæfileikar án skeiðs: 8,90
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,73
Sýnandi: Teitur Árnason
Þjálfari:
IS2018184995 Aspar frá Hjarðartúni
Örmerki: 352098100080171
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Óskar Eyjólfsson
Eigandi: Birgitta Bjarnadóttir, Óskar Eyjólfsson, Þorgeir Ólafsson
F.: IS2012125421 Boði frá Breiðholti, Gbr.
Ff.: IS2002187812 Krákur frá Blesastöðum 1A
Fm.: IS1993266200 Hrund frá Torfunesi
M.: IS2005282570 Hrund frá Ragnheiðarstöðum
Mf.: IS1986186055 Orri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1997258874 Hending frá Úlfsstöðum
Mál (cm): 148 – 136 – 142 – 66 – 143 – 37 – 47 – 44 – 6,8 – 31,0 – 19,5
Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,4
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 8,0 – 9,0 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 9,5 = 8,54
Hæfileikar: 10,0 – 10,0 – 5,0 – 10,0 – 9,5 – 9,5 – 9,5 – 7,0 = 8,79
Hægt tölt: 10,0Aðaleinkunn: 8,70
Hæfileikar án skeiðs: 9,48
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,15
Sýnandi: Þorgeir Ólafsson
Þjálfari:
IS2019101034 Baldvin frá Margrétarhofi
Örmerki: 352098100091619, 352098100107051
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Margrétarhof hf
Eigandi: Anja Egger-Meier
F.: IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1
Ff.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Fm.: IS2004288562 Raketta frá Kjarnholtum I
M.: IS2007201031 Gletta frá Margrétarhofi
Mf.: IS1997186541 Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
Mm.: IS1990287610 Brá frá Votmúla 1
Mál (cm): 143 – 130 – 135 – 62 – 135 – 38 – 47 – 42 – 6,5 – 29,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 9,0
Sköpulag: 7,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,0 – 9,0 – 7,5 = 8,36
Hæfileikar: 10,0 – 9,5 – 5,0 – 8,5 – 9,5 – 9,5 – 9,5 – 9,0 = 8,84
Hægt tölt: 9,0Aðaleinkunn: 8,67
Hæfileikar án skeiðs: 9,54
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,12
Sýnandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Þjálfari:
IS2019185270 Sólstafur frá Bakkakoti
Örmerki: 352098100093603
Litur: 45500 Leirljós blesóttur
Ræktandi: Bjarki Steinn Jónsson, Bára Aðalheiður Elíasdóttir
Eigandi: Hestvit ehf.
F.: IS2014186076 Bjarki frá Árbakka
Ff.: IS2007186651 Framherji frá Flagbjarnarholti
Fm.: IS2003258442 Björk frá Enni
M.: IS1999284371 Gyðja frá Skíðbakka I
Mf.: IS1992186799 Gýmir frá Skarði
Mm.: IS1988284370 Drottning frá Skíðbakka I
Mál (cm): 146 – 134 – 138 – 64 – 143 – 39 – 50 – 44 – 6,4 – 29,5 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 9,0
Sköpulag: 8,5 – 9,5 – 9,0 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 = 8,81
Hæfileikar: 9,5 – 9,5 – 5,0 – 9,0 – 8,5 – 9,5 – 9,5 – 8,0 = 8,58
Hægt tölt: 9,0Aðaleinkunn: 8,67
Hæfileikar án skeiðs: 9,24
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,09
Sýnandi: Jóhanna Margrét Snorradóttir
Þjálfari:
IS2019181522 Skuggi frá Sumarliðabæ 2
Örmerki: 352098100088598
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Birgir Már Ragnarsson, Hjördís Árnadóttir, Ragnar Þórisson
Eigandi: Svarthöfði-Hrossarækt ehf.
F.: IS2007184162 Skýr frá Skálakoti
Ff.: IS2000135815 Sólon frá Skáney
Fm.: IS2001284163 Vök frá Skálakoti
M.: IS2008235060 Bylgja frá Einhamri 2
Mf.: IS1998187002 Stáli frá Kjarri
Mm.: IS1997237500 Gusta frá Litla-Kambi
Mál (cm): 148 – 132 – 135 – 65 – 143 – 39 – 47 – 44 – 6,5 – 29,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,6
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 = 8,46
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 7,5 = 8,73
Hægt tölt: 8,5Aðaleinkunn: 8,64
Hæfileikar án skeiðs: 8,77
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,66
Sýnandi: Teitur Árnason
Þjálfari:
IS2019184011 Neisti frá Ytri-Skógum
Örmerki: 352098100088762
Litur: 15200 Rauður stjörnóttur
Ræktandi: Ingimundur Vilhjálmsson
Eigandi: Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Hlynur Guðmundsson
F.: IS2010156107 Konsert frá Hofi
Ff.: IS2003181962 Ómur frá Kvistum
Fm.: IS2004256111 Kantata frá Hofi
M.: IS2007284011 Gefjun frá Ytri-Skógum
Mf.: IS1986186055 Orri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1985286002 Hrefna frá Ytri-Skógum
Mál (cm): 146 – 132 – 137 – 65 – 141 – 36 – 48 – 42 – 6,6 – 30,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,8
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 9,0 – 8,0 = 8,51
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 = 8,65
Hægt tölt: 8,5Aðaleinkunn: 8,60
Hæfileikar án skeiðs: 8,76
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,68
Sýnandi: Hlynur Guðmundsson
Þjálfari: Hlynur Guðmundsson
IS2019101296 Draupnir frá Kverk
Örmerki: 352098100087862
Litur: 21100 Brúnn, ber leirlit, öll litbrigði, með/án glóþáttarins skjóttur
Ræktandi: Margrétarhof hf, Sigurþór Stefánsson
Eigandi: Sigurþór Stefánsson
F.: IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1
Ff.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Fm.: IS2004288562 Raketta frá Kjarnholtum I
M.: IS2011280900 Álfamey frá Dufþaksholti
Mf.: IS2007184857 Álfsteinn frá Hvolsvelli
Mm.: IS1996280905 Orka frá Dufþaksholti
Mál (cm): 142 – 128 – 134 – 65 – 140 – 40 – 47 – 42 – 6,6 – 30,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,9
Sköpulag: 7,5 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 9,5 = 8,44
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 9,5 = 8,66
Hægt tölt: 8,5Aðaleinkunn: 8,58
Hæfileikar án skeiðs: 8,78
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,66
Sýnandi: Benjamín Sandur Ingólfsson
Þjálfari:
IS2018125228 Þórshamar frá Reykjavík
Örmerki: 352098100086788
Litur: 34000 Rauðjarpur
Ræktandi: Leó Geir Arnarson
Eigandi: Leó Geir Arnarson
F.: IS2009125226 Reginn frá Reykjavík
Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Fm.: IS2002225233 Rimma frá Reykjavík
M.: IS2006276429 Bót frá Reyðarfirði
Mf.: IS1999187316 Börkur frá Litlu-Reykjum
Mm.: IS1997276450 Synd frá Kollaleiru
Mál (cm): 151 – 138 – 141 – 70 – 147 – 40 – 49 – 45 – 6,9 – 31,0 – 19,5
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 9,0
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 10,0 – 9,0 – 7,5 – 7,5 – 9,0 – 8,5 = 8,68
Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 6,0 = 8,39
Hægt tölt: 9,0Aðaleinkunn: 8,49
Hæfileikar án skeiðs: 8,37
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,48
Sýnandi: Jón Ársæll Bergmann
Þjálfari:
IS2017182466 Rúrik frá Halakoti
Frostmerki: Ø
Örmerki: 352206000119311
Litur: 53100 Bleikmoldóttur skjóttur
Ræktandi: Svanhvít Kristjánsdóttir
Eigandi: Maria Henningsson
F.: IS2009182336 Thór-Steinn frá Kjartansstöðum
Ff.: IS2001186915 Vilmundur frá Feti
Fm.: IS1995258300 Þota frá Hólum
M.: IS2005282466 Álfarún frá Halakoti
Mf.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi
Mm.: IS1994282450 Oddrún frá Halakoti
Mál (cm): 146 – 135 – 139 – 63 – 141 – 37 – 48 – 44 – 6,4 – 30,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,7
Sköpulag: 8,0 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 = 8,36
Hæfileikar: 8,0 – 9,0 – 9,5 – 8,0 – 7,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 = 8,54
Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,48
Hæfileikar án skeiðs: 8,36
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,36
Sýnandi: Viðar Ingólfsson
Þjálfari:
IS2019137200 Aríus frá Bjarnarhöfn
Örmerki: 352206000136305
Litur: 27000 Dökkbrúnn, svartur
Ræktandi: Herborg Sigríður Sigurðardóttir
Eigandi: Júlíus Brjánsson
F.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Ff.: IS1997186183 Sær frá Bakkakoti
Fm.: IS2002286105 Þyrnirós frá Kirkjubæ
M.: IS2009237210 Assa frá Bjarnarhöfn
Mf.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Mm.: IS2001237205 Gyðja frá Bjarnarhöfn
Mál (cm): 145 – 133 – 139 – 65 – 150 – 40 – 50 – 43 – 6,7 – 31,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 9,1
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 8,5 = 8,46
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 = 8,36
Hægt tölt: 8,0Aðaleinkunn: 8,40
Hæfileikar án skeiðs: 8,52
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,50
Sýnandi: Vera Evi Schneiderchen
Þjálfari:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link