Flurina knapi ársins 2021 í Sviss

  • 30. mars 2022
  • Fréttir
Aðalfundur IPV CH

Aðalfundur IPV CH, svissneska Íslands hestafélagsins, var haldinn um helgina. Þetta var 60. aðalfundurinn í sögu félagsins sem sýnir samheldnina í stöðugt vaxandi samtökum.

Á fundinum voru veitt ýmis konar verðlaun og þar á meðal voru knapar ársins 2021 heiðraðir. Flurina Barandun hlaut titilinn knapi ársins 2021. Markus Albrecht Schoch var útnefndur skeiðknapi ársins 2021. Jan Meier er knapi ársins 2021 í ungmennaflokki og Indira Scherrer er knapi ársins 2021 í unglingaflokki. Karin Heller var útnefnd sem þjálfari ársins 2021. Aðrar útnefningar er hægt að sjá HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link