Folaldasýning Hrossaræktarfélags Villingaholtshrepps
Folaldasýning fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Villingaholtshrepps verður haldin sunnudaginn 16. feb. 2014 í reiðhöllinni á Austurás kl.14.00. Þátttökugjald er 2000 kr fyrir hvert folald. Skráning í síma hjá Atla Geir S:8982256 [email protected]
Skráningfrestur rennur út kl 22.00, 14. feb. 2014. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi.
Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl.13.30
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV