Folaldasýning og uppboð á folatollum

  • 18. mars 2022
  • Fréttir
Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin á morgun, laugardag, 19.mars

„Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 19.mars næstkomandi kl 13:00

Keppt verður í flokki hestfolalda og merfolalda og fær folald sýningarinnar hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar. Uppboð folatolla verður á sínum stað og eins og fram hefur komið verða boðnir upp tollar undir Sólfaxa frá Herríðarhóli, Hersi frá Húsavík, Leyni frá Garðshorni á Þelamörk og Apollo frá Haukholtum. Einnig verða boðnir upp tollar undir kynbótahestinn Hring frá Gunnarsstöðum sem hefur heillað marga á brautinni og hlotið 1.verðlaun fyrir afkvæmi, klárhestinn glæsilega Kolgrím frá Breiðholti, Gbr. og undir ungan og ósýndan hest; Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum sem er afar vel ættaður.

*Hringur frá Gunnarsstöðum er frábær klárhestur undan Ölmu Rún frá Skarði og Hróðri frá Refstöðum. Hann er með í aðaleinkunn 8,30, 8,20 fyrir sköpulag og 8,36 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir brokk, 9 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hann hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi 2021. Dómsorð: Hringur gefur stór afkvæmi, þau mættu vera fríðari á höfuð, hafa oft merarskál. Hálsinn er reistur og vel settur við skásetta bóga, yfirlínan í baki er afar sterk og lendin löng. Afkvæmin hafa afar góða framhæð; eru fótahá og vörpuleg á velli. Fætur eru þurrir, réttleiki þeirra er um meðallag og hófar þokkalega gerðir. Prúðleiki á fax og tagl er rýr. Hringur gefur fyrst og fremst klárhross með tölti; þau eru hágeng, léttstíg og eiga auðvelt með að bera sig á tölti, einnig á hægri ferð, brokkið er skrefmikið. Stökkið er ferðmikið, teygjugott og hátt og hæga stökkið er takthreint og lyftingargott. Hringur gefur reist léttleikahross sem eru glæst í reið, þau eru viljug og vakandi, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi

 


*Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr. er glæsilegur klárhestur undan Sjóð frá Kirkjubæ og Hrund frá Torfunesi. Hann er með 8,39 í aðaleinkunn, 8,62 fyrir sköpulag og 8,26 fyrir hæfileika (hæfileikar án skeiðs 8,85). Þar af hefur hann hlotið 9 fyrir háls/herða/bóga, bak og lend, hófa, tölt, brokk, greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

 


*Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum er mjög efnilegur og stórættaður stóðhestur á 4.vetur undan gæðingunum Hátíð frá Úlfsstöðum og Loka frá Selfossi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link