Folaldasýning Sörla

  • 3. mars 2022
  • Fréttir
Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin 19.mars

„Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 19.mars næstkomandi kl 13:00

Keppt verður í flokki hestfolalda og merfolalda og fær folald sýningarinnar hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar. Uppboð folatolla verður á sínum stað og verða boðnir upp tollar undir frábæra stóðhesta, frekar auglýst síðar.

Skráning er hafin; vinsamlegast sendið á netfangið topphross(hja)gmail.com. Nafn folalds, nafn móður og föður folalds, litur, eigandi og ræktandi folalds. Skráningargjald er 2500 krónur, leggja inn á reikning 0545-26-3615, kt:640269-6509 og senda kvittun á topphross(hja)gmail.com með nafn folalds sem skýringu.

Undanfarin ár hafa komið fram folöld á þessari sýningu sem farið hafa í háa dóma og verður spennandi að sjá folöldin þetta árið.“

Kv. Kynbótanefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link