Folaldasýning Sörla 2016

  • 29. febrúar 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ein stærsta folaldasýning ársins.

Minnum á eina stærstu folaldasýningu ársins, en hún verður haldin á Sörlastöðum, félagssvæði hestamannafélagsins Sörla Hfj, laugardaginn 5 mars n.k.

Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum. Skráning er i fullum gangi og lýkur á miðnætti, fimmtudaginn 3.mars.

Skráningar skal senda á netfangið [email protected].

Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:

                 -Nafn folalds, uppruni og IS númer

                 -Nöfn móður og föður folalds

                 -Litur

                 -Eigandi og ræktandi folalds

Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 6402696509.

Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið [email protected] með nafn folalds sem skýringu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link