Folatollar og málverk í verðlaun

  • 13. apríl 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Kvennatölt í reiðhöll Spretts.

Hestamannafélagið Sprettur stendur fyrir Kvennatölti í Reiðhöll Spretts næstkomandi laugardag, 18. apríl. Keppendum er bent á að skrá sig fyrir lok dags á morgun, 13. apríl í tilkynningu.

„Vinningar í Kvennatöltinu í ár eru ekki af verri endanum. Fyrir glæsilegasta parið í hverjum flokki er folatollur undan vel völdum stóðhestum, til að mynda Nökkva frá Syðra-Skörðugili og Geisla frá Sælukoti. Í vinningakörfunni eru málverk, snyrtivörur, hárvörur, beisli, skart, ostakörfur, reiðtímar, fóðurbætir og peningaverðlaun í fyrstu verðlaun í öllum flokkum.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com og stendur skráning til miðnættis þann 13. apríl. Skráningar fara óvenju vel af stað og stefnir í gríðarlega sterka og spennandi keppni.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link