Foli undan Aðli í háan dóm

  • 16. ágúst 2011
  • Fréttir
Hryssur frá Koltursey í fyrstu verðlaun

Síðsumarssýning á kynbótahrossum stendur nú yfir á Mið-Fossum í Andakíl í Borgarfirði. Búið er að fulldæma um 30 hross af þeim 85 sem skráð eru. Sex hross hafa hlotið fyrstu verðlaun og er Daníel Jónsson sýnandi fjögurra þeirra.

Tvær hryssur frá Koltursey í Landeyjum eru komnar með aðaleinkunn yfir 8,0. Það eru systurnar Hneta og Hnota frá Koltursey, báðar undan Kjarnorku frá Sauðárkróki, sem er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Síðu yngri frá Sauðárkróki. Ræktendur og eigendur eru Pétur Jónsson og Þórhildur Þórhallsdóttir.

Með hæsta dóm eins og er er Vaðall frá Akranesi, undan Aðli frá Nýja-Bæ og Þræsingu frá Garðabæ, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla. Hann er fjögra vetra og hefur hlotið 8,30 fyrir sköpulag, 8,40 fyrir kosti og 8,36  út. Sem sagt, efnilegur stóðhestur undan Aðli kominn fram. Sýnandi Karen Líndal Marteinsdóttir. Ræktandi og eigandi Brynjar Atli Kristinsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link