Forkeppni lokið í A flokki og barnaflokki

  • 3. júní 2022
  • Fréttir

Goði frá Bjarnarhöfn og Daníel Jónsson standa efstir eftir fyrri umferð í A flokk á gæðingamóti Sörla Mynd: Skjáskot af Alendis

Niðurstöður frá fyrsta degi gæðingamóts Sörla

Gæðingamót Sörla hófst í gær með forkeppni í A flokki og barnaflokki en keppni í  b flokki, unglingaflokki og ungmennaflokki ásamt tölti T1 fer fram í dag.

Mótið er jafnframt úrtaka félagsins fyrir Landsmót en boðið verður upp á tvær umferðir. Hestamannafélagið Sörli hefur rétt á að senda frá sér 8 fulltrúa í hverjum flokki til að keppa á Landsmóti.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður gær dagsins og þeir sem hafa unnið sér rétt til að keppa á Landsmóti eru stjörnumerktir. ATH. að niðurstöðurnar geta breyst eftir seinni umferð sem fer fram á laugardag.

A flokkur – Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
*1 Goði frá Bjarnarhöfn Daníel Jónsson 8,79
*2 Engill frá Ytri-Bægisá I Snorri Dal 8,64
*3 Glampi frá Kjarrhólum Daníel Jónsson 8,63
*4 Júní frá Brúnum Hanna Rún Ingibergsdóttir 8,56
*5 Greifi frá Grímarsstöðum Snorri Dal 8,51
*6 Gleymmérei frá Flagbjarnarholti Sindri Sigurðsson 8,39
*7 Stólpi frá Ási 2 Hlynur Guðmundsson 8,34
*8 Steinar frá Stíghúsi Hannes Brynjar Sigurgeirson 8,25
9 Þór frá Minni-Völlum Hinrik Þór Sigurðsson 8,20
10 Kolsá frá Kirkjubæ Ingibergur Árnason 8,15
11 Mirra frá Tjarnastöðum Daníel Jónsson 8,10
12 Depla frá Laxdalshofi Inga Kristín Sigurgeirsdóttir 8,02
13 Strengur frá Húsanesi Atli Guðmundsson 7,93
14 Glettingur frá Efri-Skálateigi 1 Hinrik Þór Sigurðsson 7,84
15 Taktur frá Hrísdal Anna Björk Ólafsdóttir 7,68
16 Dyggð frá Skipanesi Anna Björk Ólafsdóttir 7,45
17 Djarfur frá Litla-Hofi Sara Dís Snorradóttir 7,32

Barnaflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
*1 Kristín Birta Daníelsdóttir Amor frá Reykjavík 8,63
*2 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir Glóblesi frá Gelti 8,33
*3 Maríanna Hilmisdóttir Dögg frá Hafnarfirði 8,32
*4 Hrafnhildur Rán Elvarsdóttir Stefnir frá Hofsstaðaseli 8,31
*5 Ásthildur V. Sigurvinsdóttir Kólfur frá Kaldbak 8,29
6 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir Spekingur frá Litlu-Hlíð 8,25
*7 Una Björt Valgarðsdóttir Agla frá Ási 2 8,23
*8 Elísabet Benediktsdóttir Sólon frá Tungu 8,18
*9 Árný Sara Hinriksdóttir Rimma frá Miðhjáleigu 8,17
10 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir Tannálfur frá Traðarlandi 8,09
11 Guðbjörn Svavar Kristjánsson Bróðir frá Stekkjardal 7,78
12 Vanesa Gregersen Djarfur frá Ólafsvöllum 7,76
13 Veronika Gregersen Þór frá Kolsholti 2 0,00

Ögn er með tvo hesta inn og getur valið með hvorn hestinn hún fer með á Landsmót.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link