Formenn þakka fyrir sig
„Það var ánæjulegt að sjá hversu víða hestamenn komu að og hversu vel þeir skemmtu sér á sameiginlegri Uppskeruhátíð Félags hrossabænda og Landssambands hestamanna á veitngarstaðnum Gullhömrum í Grafarholti um síðustu helgi. Bæði félögin rifjuðu upp hápunkta síðasta árs og veittu viðurkenningar auk þess var Einari Öder Magnússon heiðraður með Gullmerkinu sem er æðsta viðurkenning LH.
Ástæða er til að þakka öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinar. Að öðrum ólöstuðum ber að þakka sérstaklega þeim Magnúsi Benediktssyni og Óskari Nikulássyni fyrir þeirra framlag við gerð myndskeiða með hápunktum siðasta árs og myndbands með kveðju frá afreksmanninum Einari Öder Magnússyni.
Okkur er strax farið að hlakka til næstu hátíðar.
Með bestu kveðju og fyrir hönd okkar félaga“
Sveinn Steinarsson form FHB og Lárus Hannesson form LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH