Forsala á Ræktun 2018

  • 20. apríl 2018
  • Fréttir
Stórsýningu Hrossaræktarsamtaka suðurlands Ræktun 2018 sem verður haldin í Fákaseli laugardaginn 28.apríl kl. 20.

Nú er forsala að hefjast fyrir stórsýningu Hrossaræktarsamtaka suðurlands Ræktun 2018 sem verður haldin í Fákaseli laugardaginn 28.apríl kl. 20.

Forsalan fer fram í verslun Top Reiter í Ögurhvarfi, Lífland á Hvolsvelli og Reykjavík og hjá Baldvin og Þorvaldi á Selfossi.

Síðustu ár hefur verið þétt setið á pöllunum og því vissara að vera snemma á ferðinni og tryggja sér miða í tíma því nú stefnir  í mjög glæsilega sýningu og hafa margir af allra bestu gæðingum landsins boðað komu sína.

Miðaverð er kr. 3.000. frítt fyrir 12 ára og yngri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link