Fótaburðurinn kemur
„Ég byrja alltaf á því að biðja um sem minnst. Mestur tími fer í að mýkja hestana upp og leyfa þeim að styrkjast, svo allir vöðvar séu tilbúnir til að mæta þeim átökum sem í þjálfuninni felast. Ég hugsa ekki mikið um fótaburð, meira um hreinleika gangtegundanna. Sumir eru hálf druslulegir framan af vetri. Fólk eiginlega hlær og hristir hausinn yfir því hvað ég sé að spá með því að hafa þá svona. En fótaburðurinn kemur. Fæturnir þurfa að fá að styrkjast eins og allir vöðvar. Þegar hesturinn er tilbúinn, fer hann að biðja um að gera hlutina sjálfur,” segir Guðmundur Friðrik Björgvinsson knapi ársins 2012.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing