Frá grunni til yfirferðar
Sýnikennsla á Sauðárkróki
Miðvikudaginn 12. febrúar verða nemendur á Reiðkennarabraut Háskólans á Hólum með sýnikennslu á Sauðárkróki. Fjallað verður um töltþjálfun – frá grunni til yfirferðar. Farið verður m.a. yfir líkamsbeitingu, fjölbreytni í þjálfun, söfnun og yfirferðarþjálfun.
Byrjað verður á stuttum fyrirlestri í Tjarnarbæ kl 19:00 og svo verður sýnikennsla í Svaðastaðahöllinni.
Aðgangseyrir er 500kr. ATH. Eingöngu er tekið við peningum þar sem ekki verður posi á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH