Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum Frá Vesturlandsdeild í hestaíþróttum

  • 7. október 2023
  • Tilkynning

Stjórn Vesturlandsdeildar í hestaíþróttum auglýsir laus til umsóknar sæti í deildinni á komandi vetri.

Um skipan liða segir svo í samþykktum deildarinnar:

1a. Vesturlandsdeildin er tvíþætt stigakeppni í hestaíþróttum, þ.e. einstaklings- og liðakeppni.

1b. Liðin eru sjö og saman standa þau af fjórum til fimm keppendum sem allir þurfa að hafa náð 16 ára aldri á almanaksárinu. Skráðir keppendur geta því verið á bilinu 28 – 35 talsins.

1c. Liðin velja sér liðsstjóra sem er tengiliður liðsins við stjórn deildarinnar.

1d. Í upphafi hvers tímabils greiða liðin þátttökugjald sem ákveðið er á aðalfundi hverju sinni. Greiða þarf þátttökugjald liðs fyrir 1. desember ár hvert og tilkynna þarf nöfn liðsmanna eigi síðar en 2 vikum fyrir keppni.

Áhugasamir sendi tilkynningar eða fyrirspurnir um þátttöku til formanns deildarinnar Kristjáns Gíslasonar í gegn um netfangið [email protected] fyrir 22. Október n.k.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link