Frábær árangur yngri knapa í flugskeiði

  • 16. nóvember 2023
  • Fréttir

Verðlaunaafhending i 100 metra skeiði ungmenna á Íslandsmóti

Það er engu til logið þegar því er haldið fram að framtíðarknapar okkar geti hleypti til skeiðs. Knapar í ungmenna- og unglingaflokki náðu fágætum tímum í 100 metra skeiði í ár og eru engu til logið þegar því er haldið fram að þau gefi eldri knöpum ekkert eftir.

Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir á besta tíma ársins í ungmennaflokki á hryssunni Ylfu frá Miðengi, 7,34 sekúndur en til viðbótar fóru 8 aðrir knapar í ungmennaflokki undir 8 sekúndum, sem telst ansi gott.

Dagur Sigurðarson á besta tíma ársins í unglingaflokki en hann er 7,36 sekúndur á hryssunni Trommu frá Skúfslæk. Þess til viðbótar náðu 8 unglingar þeim árangri að fara undir 8 sekúndum.

Dagur Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk

Hér fyrir neðan má sjá lista þeirra 10 efstur í hvorum flokki fyrir sig.

 

Ungmennaflokkur

Nr. Knapi Hross Tími
1 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Ylfa 7,34
2 Jón Ársæll Bergmann Rikki 7,37
3 Kristófer Darri Sigurðsson Gnúpur 7,67
4 Kristján Árni Birgisson Krafla 7,71
5 Þórey Þula Helgadóttir Þótti 7,72
6 Þórgunnur Þórarinsdóttir Gullbrá 7,73
7 Benedikt Ólafsson Leira-Björk 7,78
8 Þorvaldur Logi Einarsson Skíma 7,86
9 Sigurður Baldur Ríkharðsson Hrafnkatla 8,20
10 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Gná 8,25

Unglingaflokkur

Nr. Knapi Hross Tími
1 Dagur Sigurðarson Tromma 7,36
2 Matthías Sigurðsson Straumur 7,42
3 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Frekja 7,62
4 Sara Dís Snorradóttir Djarfur 7,66
5 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör 7,79
6 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þórfinnur 7,93
7 Friðrik Snær Friðriksson Lukka 7,96
8 Matthías Sigurðsson Magnea 7,99
9 Embla Lind Ragnarsdóttir Kleópatra 8,16
10 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Gjóska 8,22

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar