Frábær Ræktun

  • 24. apríl 2016
  • Fréttir
Stjörnum prýdd stórsýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands.

Í kvöld fór fram hin árlega stórsýning Ræktun 2016, en þar gaf að líta á þriðja tug atriða allt frá hópi verknema til fremstu hrossa landsins. Ræktunarhross báru uppi sýninguna eins og áður hefur verið en boðið var upp á bæði afkvæmahópa, afkvæmahópa og einstaklingssýnd hross.

Erfitt er að taka saman heildstætt yfirlit yfir hrossin sem fram komu en fyrir sýninguna var mest spenna fyrir Konsert frá Hofi með nýjan knapa Jakob Svavar Sigurðsson. Þeir félagarnir sýndu snilldartakta í kvöld, en einurð í vilja og frábært tölt skein af þeim í kvöld. Af öðrum hrossum má nefna Sendingu frá Þorlákshöfn sem var frábærlega sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur og stóðhestarnir Krókus frá Dalbæ og Völsungur frá Skeiðvöllum vöktu einnig hrifningu áhorfenda.

Framkvæmd sýningarinnar tókst vel í alla staði en hún tók alls um þrjá klukkutíma með hléi. Miklu munar um að hver hópur fékk aðeins eina tilraun í gegnum höllina, en endurteknar tilraunir við það eiga til að gera sýningar sem þessar full langar.

Sannarlega frábær sýning, samtökunum og þeim sem að henni komu til mikils sóma.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link