Frábærir hestar og knapar á Flúðum
Nagli frá Flagbjarnarholti og Sigurbjörn Bárðarson Ljósmynd/StiklaPhotography
Gæðingamótinu á Flúðum lauk í gær með A-úrslitum í öllum greinum gæðingakeppninnar. Veðrið var ekki eins og best verður á kosið bæði rok og rigning. Keppendur og starfsmenn létu það þó ekki á sig fá og fór allt vel fram.
Nagli frá Flagbjarnarholti stóð efstur í A-flokki gæðinga með 8,80 í einkunn en Sigurbjörn Bárðarson sýndi hann. í A-flokki áhugamanna var það Iða frá Vík í Mýrdal sem Brynjar Nói Sighvatsson sýndi sem sigraði með 8,40 í einkunn. í A-flokki ungmenna stóð efstur Þorvaldur Logi Einarsson á Sóldögg frá Miðfelli 2 með 8,46 í einkunn.

Efstu hestar í B-flokki gæðinga Ljósmynd/StiklaPhotography
Í B-flokki gæðinga var það Rauða-List frá Þjóðólfshaga sem stóð efst með hvorki meira né minna en 9,05 í úrslitum en það var Sigurður Sigurðarson sem sýndi Rauðu-List. í flokki áhugamanna var það Bertha María Waagfjörð sem sýndi efsta hestinn, Amor frá Reykjavík, og hlaut hann 8,57 í einkunn. í B-flokki ungmenna hlaut Arnar Máni Sigurjónsson hæsta einkunn á Geisla frá Miklholti en þeir hlutu 8,60 í einkunn.

Arnar Máni og Geisli Ljósmynd/StiklaPhotography
Fríða Hildur Steinarsdóttir vann keppni í barnaflokki á Framsókn frá Austurhlíð 2 með einkunnina 8,64. Í unglingaflokki var það Kristján Árni Birgisson sem stóð uppi sem sigurvegari á Glámi frá Hafnarfirði með 8,50 í einkunn.

Fríða Hildur og Framsókn Ljósmynd/StiklaPhotography
B-flokkur ungmenna úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Arnar Máni Sigurjónsson / Geisli frá Miklholti | 8,60 |
| 2 | Kristín Hrönn Pálsdóttir / Gaumur frá Skarði | 8,44 |
| 3 | Arney Ólöf Arnardóttir / Jara frá Árbæjarhjáleigu II | 8,41 |
| 4 | Guðlaug Birta Sigmarsdóttir / Hrefna frá Lækjarbrekku 2 | 8,33 |
| 5 | Dagbjört Skúladóttir / Hannes frá Selfossi | 8,31 |
| 6 | Sólveig Ása Brynjarsdóttir / Vök frá Dalbæ | 8,16 |
| 7 | Sölvi Freyr Freydísarson / Dani frá Litlu-Brekku | 7,35 |
| 8 | Kári Kristinsson / Drift frá Hraunholti | 4,75 |
A-flokkur ungmenna úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Þorvaldur Logi Einarsson / Sóldögg frá Miðfelli 2 | 8,46 |
| 2-3 | Þórey Þula Helgadóttir / Sólon frá Völlum | 8,37 |
| 2-3 | Kristján Árni Birgisson / Rut frá Vöðlum | 8,37 |
| 4 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Björk frá Barkarstöðum | 8,37 |
| 5-6 | Dagbjört Skúladóttir / Feykja frá Auðsholtshjáleigu | 8,32 |
| 5-6 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snædís frá Forsæti II | 8,32 |
| 7 | Oddur Carl Arason / Teigur frá Ásatúni | 8,27 |
| 8 | Katla Sif Snorradóttir / Djarfur frá Litla-Hofi | 7,99 |
Unglingaflokkur úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Kristján Árni Birgisson / Glámur frá Hafnarfirði | 8,50 |
| 2 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snillingur frá Sólheimum | 8,44 |
| 3 | Anna María Bjarnadóttir / Tónn frá Hjarðartúni | 8,43 |
| 4 | Sara Dís Snorradóttir / Tíberíus frá Hafnarfirði | 8,38 |
| 5 | Friðrik Snær Friðriksson / Flóki frá Hlíðarbergi | 8,37 |
| 6 | Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir / Ísó frá Grafarkoti | 8,35 |
| 7 | Ingunn Rán Sigurðardóttir / Hrund frá Síðu | 8,18 |
| 8 | Svandís Aitken Sævarsdóttir / Fjöður frá Hrísakoti | 0,00 |
Barnaflokkur úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Fríða Hildur Steinarsdóttir / Framsókn frá Austurhlíð 2 | 8,64 |
| 2 | Dagur Sigurðarson / Fold frá Jaðri | 8,60 |
| 3 | Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti | 8,52 |
| 4 | Eik Elvarsdóttir / Tíbrá frá Strandarhjáleigu | 8,44 |
| 5 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Hlynur frá Húsafelli | 8,41 |
| 6 | Hildur María Jóhannesdóttir / Frigg frá Hamraendum | 8,29 |
| 7 | Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Bragabót frá Bakkakoti | 8,06 |
| 8 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi | 6,73 |
A-flokkur Úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Nagli frá Flagbjarnarholti / Sigurbjörn Bárðarson | 8,80 |
| 2 | Engill frá Ytri-Bægisá I / Snorri Dal | 8,68 |
| 3 | Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Erla Gunnarsdóttir | 8,61 |
| 4-5 | Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti / Arnhildur Helgadóttir | 8,59 |
| 4-5 | Örvar frá Gljúfri / Jón Óskar Jóhannesson | 8,59 |
| 6 | Myrkvi frá Traðarlandi / Ríkharður Flemming Jensen | 8,57 |
| 7 | Dagmar frá Hjarðartúni / Hans Þór Hilmarsson | 8,57 |
| 8 | Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 / Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | 8,31 |
A-flokkur áhugamanna Úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Iða frá Vík í Mýrdal / Brynjar Nói Sighvatsson | 8,40 |
| 2 | Eva frá Reykjadal / Guðríður Eva Þórarinsdóttir | 8,37 |
| 3 | Silfurperla frá Lækjarbakka / Kristinn Már Sveinsson | 8,33 |
| 4 | Íva frá Ásatúni / Grímur Guðmundsson | 8,31 |
| 5 | Hamingja frá Vesturkoti / Eyrún Jónasdóttir | 8,10 |
| 6 | Depla frá Laxdalshofi / Inga Kristín Sigurgeirsdóttir | 8,07 |
| 7 | Þór frá Minni-Völlum / Hafdís Arna Sigurðardóttir | 7,11 |
B-flokkur Úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 / Sigurður Sigurðarson | 9,05 |
| 2 | Hrafn frá Breiðholti í Flóa / Sigurbjörn Bárðarson | 8,88 |
| 3 | Flugar frá Morastöðum / Anna Björk Ólafsdóttir | 8,67 |
| 4 | Hrönn frá Torfunesi / Birta Ingadóttir | 8,63 |
| 5 | Silfá frá Húsatóftum 2a / Lea Schell | 8,56 |
| 6 | Loki frá Lokinhömrum 1 / Ásmundur Ernir Snorrason | 8,56 |
| 7 | Bjalla frá Stokkalæk / Sara Sigurbjörnsdóttir | 8,50 |
| 8 | Fengur frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Erla Gunnarsdóttir | 7,41 |
B-flokkur áhugamanna úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Amor frá Reykjavík / Bertha María Waagfjörð | 8,57 |
| 2 | Vinur frá Fossi / Hólmsteinn Ö. Kristjánsson | 8,46 |
| 3 | Læsing frá Sandhólaferju / Mathilde Marij Nijzingh | 8,41 |
| 4 | Kappi frá Vorsabæ II / Celina Sophie Schneider | 8,32 |
| 5 | Gná frá Miðkoti / Svavar Arnfjörð Ólafsson | 8,29 |
| 6 | Brjánn frá Hvolsvelli / Ásmundur Þórisson | 8,25 |
| 7 | Náttfari frá Lindarholti / Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir | 8,08 |
| 8 | Máney frá Úlfarsfelli / Sophia Fingerhut | 7,96 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum