Frábærir stóðhestar í stóðhestaveltu landsliðsins
Hið árlega fjáröflunarmót landsliðnefndar LH, Allra sterkustu, mun ekki fara fram í vor vegna samkomubanns. Í tengslum við Allra sterkustu hefur undanfarin ár verið haldin stóðhestavelta landsliðsins og hefur hún skilað mikilvægum tekjum til landsliðsmála LH. Í ár mun stóðhestaveltan fara fram með breyttu sniði. Sem fyrr verða hátt í 100 hestar í pottinum og þar á meðal flestar stærstu stjörnurnar í stóðhestaheiminum á Íslandi í dag.
Miðasala hefst 1.maí og mun fara fram í gegnum miðasölukerfi Tix, dregið verður úr seldum miðum í beinni útsendingu á facebooksíðu LH. Verð á miða í stóðhestaveltunni er 40.000 kr. Hver keyptur miði veitir aðgang fyrir eina hryssu undir hátt dæmdan stóðhest á árinu 2020. Girðingagjald er ekki innifalið.
Fyrstu 28 stóðhestarnir hafa nú þegar verið kynntir á heimasíðu og facebooksíðu LH. Hægt að nálgast það hér https://www.lhhestar.is/
Eldur frá Torfunesi (8,60) Myndband af Eldi í Worldfeng.
Forkur frá Breiðabólsstað (8,67 ) Myndband af Forki í Worldfeng.
Þröstur frá Ármóti (8,49) Myndband af Þresti í Worldfeng.
Bósi frá Húsavík (8,54) Myndband af Bósa í Worldfeng.
Organisti frá Horni (8,72) Myndband af Organista í Worldfeng.
Atlas frá Hjallanesi (8,76) Myndband af Atlasi á WorldFeng.
Sólon frá Skáney (8,48). Myndband af Sóloni á WorldFeng.
Kastor frá Garðshorni á Þelamörk (8,45) Myndband af Kastori á WorldFeng.
Hreyfill frá Vorsabæ (8,54) Myndband af Hreyfli á WorldFeng.
Kjuði frá Dýrfinnustöðum (8,38) Myndband af Kjuða á WorldFeng.
Útherji frá Blesastöðum (8,24) Myndband af Útherja á WorldFeng.
Stormur frá Herríðarhóli (8,19) Myndband af Stormi á WorldFeng.
Vákur frá Vatnsenda (8,17) Myndband af Vák á WorldFeng.
Sær frá Bakkakoti (8,62) Myndband af Sæ á WorldFeng.
Kolbeinn frá Hrafnsholti (8,42) Myndband af Kolbeini á WorldFeng.
Jarl frá Árbæjarhjáleigu (8,78) Myndband af Jarli á WorldFeng.
Steggur frá Hrísdal (8,46) Myndband af Stegg hér.
Hringur frá Gunnarsstöðum (8,30) Myndband af Hring hér.
Eldur frá Bjarghúsum (8,35) Myndband af Eldi hér.
Jökull frá Rauðalæk (8,49) Myndband af Jökli hér.
Ómur frá Kvistum (8,61) Myndband af Ómi hér.
Snillingur frá Íbishóli (8,46) Myndband af Snilling hér.
Spuni frá Vesturkoti (8,92) Myndband af Spuna á Worldfeng.
Ljósvíkingur frá Steinnesi (8,33) Myndband af Ljósvíkingi á WorldFeng.
Kórall frá Lækjarbotnum (8,50). Myndband af Kóral á WorldFeng.
Knár frá Ytra-Vallholti (8,47) Myndband af Kná á WorldFeng.
Þytur frá Skáney (8,49) Myndband af Þyt á WorldFeng.
Blær frá Torfunesi (8,55) Myndband af Blæ á WorldFeng.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH