Fræðsludagurinn „Léttleiki og frelsi“ einn enn fyrirlesari.

  • 7. desember 2010
  • Fréttir
Fræðsludagurinn „Léttleiki og frelsi“ einn enn fyrirlesari.

Fræðsludagurinn „Léttleiki og frelsi“ er framundan í Mosfellsbænum og er ýmislegt forvitnilegt þar á dagskrá… 

Kristbjörg Halla Magnúsdóttir N.A.A.D.A.C.  ráðgjafi heldur erindi þar sem hún mun tala um það sem kallað er „Burnout“ sem er kulnun í starfi. Allir upplifa misgott gengi, hæðir og lægðir í sínu starfi. Kristbjörg mun fjalla um einkenni „kulnunar“ og hvað er til ráða. Hún fjallar meðal annars um það hver hvatinn í starfi getur verið, áhrif velgengni, vandamálið „hroka“ og síðan vonbrigðin og ráðaleysið er ver gengur.
Þetta er án efa erindi sem á erindi við alla starfandi tamningamenn og reiðkennara og geta örugglega allir aðrir einnig nýtt það sér til hagsbóta.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link