Fræðslukvöld um þjálfunarstiga Háskólans á Hólum
Sýnikennslan verður haldin að Miðfossum í Borgarfirði 12. febrúar 2014. Sýnikennslan er fyrir áhugasama hestamenn sem vilja glöggva vitund sýna fyrir uppbyggingu á hestunum sínum og byrjar hún stundvíslega klukkan 20:00 og stendur til 22:00. Hún byrjar á stuttum fyrirlestir og síðan verður sýnikennsla.
Reiðkennaraefni Háskólans á Hólum eru nú á dögum að halda sýnikennslur víðsvegar um land og munu þrír nemendur sækja miðfossa heim og er það :
Astrid Skou Buhl, Bjarki Þór Gunnarsson og Johanna Schulz
Aðgangseyrir 1000 kr og greiðist við innganginn. Athuga skal að ekki er tekið við greiðslukortum. Sýnikennsla þessi er ekki haldin í gróðaskyni heldur einungis til æfingar og ánægju og aðgangseyrir fer upp í olíukostnað og önnur gjöld sem til falla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH