Framboð til aðalstjórnar LH

  • 1. nóvember 2022
  • Fréttir
Jón Þorberg Steindórsson formaður GDLH

Jón Þorberg Steindórsson formaður gæðingadómarafélags Íslands býður sig fram til stjórnar/varastjórnar Landsamband hestmannafélaga

Félagar í LH, ég býð mig fram til stjórnar / varastjórnar LH.

Ég er Reykvíkingur en bý ásamt fjölskyldu að Minni-Völlum í Landsveit. Ég hef undanfarin ár setið í stjórn GDLH og sinnt formennsku þar síðan 2019. 

Hestamennskan spannar breitt svið allt frá hinum almenna félagsmanni sem að stundar útreiðar sér til ánægju og upp í atvinnumanninn sem að hefur sitt lifibrauð úr hestamennsku.

Það sem að við þurfum að gera til þess að sporna við þeirri fækkun sem að hefur orðið á iðkendum undanfarin ár er að fara að veita þeim fjölmörgu verkefnum alvöru athygli hjá hestamannafélögum sem að í samstarfi við skólana hafa skapað börnum tækifæri til þess að kynnast hestamennsku. Félagshesthús eru rekin með miklum myndarbrag á höfuðborgarsvæðinu og út á landi, í þessum verkefnum tel ég tækifærin liggja með umfjöllun í fjölmiðlum þ.e.a.s. að kynna þetta frábæra starf hjá félögunum mun betur en hefur verið gert, þar liggja tækifærin í nýliðun.

Við þurfum að vera vakandi yfir ferðafrelsi okkar um landið á hestum, það er ekki sjálfsagt að geta ferðast að vild eins og hér á landi. Það heyri ég á þeim erlendu ferðamönnum sem ég fer með ríðandi um mína heimasveit. 

Í þessi verkefni og önnur er ég tilbúinn að leggja mitt af mörkum í þágu hestamanna.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link