Landsamband hestamanna Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga

  • 23. október 2024
  • Aðsend grein Fréttir
Jón Þorberg Steindórsson - Hestamannafélaginu Geysir

Ég heiti Jón Þorberg Steindórsson og er félagsmaður í hestamannafélaginu Geysi í Rangárvallasýslu.

Ég hef setið í stjórn GDLH og gegni formennsku í því félagi nú.
Hestamennskan er íþrótt sem stunduð er á breiðum grundvelli og nauðsynlegt er að LH starfi fyrir allan þann hóp sem hana stunda, allt frá hinum hefðbundna útreiðarmanni til þess sem hefur hestamennsku að atvinnu.

Mínar áherslur eru

Efla samtal og samstarf við félögin hvar sem þau eru í landinu.

Að stjórn auki sýnileika þess öfluga æskulýðsstarfs sem að félög í landinu standa fyrir og þar á LH að vera leiðandi í samtalinu.

Greina þarf vel kostnað keppenda á vegum Íslands á HM og NM, hvers vegna er hann svo mikill?

Opna stjórnsýslu LH og gera hana enn aðgengilegri með birtingu fundargerða þeirra mörgu nefnda sem að starfa innan LH.

Vinna þarf að því hvernig LH getur stutt enn frekar við bakið á félögum í reiðvegamálum.

Koma á fót jöfnunarsjóði fyrir félögin vegna ferðakostnaðar dómara, akstur, gisting og flug.

 

Ég óska þingfulltrúm góðs landsþings.

Jón Þorberg Steindórsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar