Sparta í 9,10 fyrir hæfileika
Hekla Rán Hannesdóttir, Sparta frá Eystra-Fróðholti og Jón Ársæll Bergmann
Þriðja vikan í kynbótadómum hófst í dag þegar sýningar á Rangárbökkum og Sörlastöðum hófust. Þeim til viðbótar hefst svo fyrsta sýning ársins norðanlands á morgun að Hólum. Allar eru sýningarnar í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og geta áskrifendur sjónvarpsstöðvarinnar einnig horft á sýningarnar að þeim loknum. Mörg athyglisverð hross komu til dóms í dag á báðum þessum sýningarstöðum.
Nú í síðasta holli dagsins á Sörlastöðum komu fram tvær hryssur sem hlutu hátt í 8,80 í aðaleinkunn en það voru þær Vala frá Vindási og Sparta frá Eystra-Fróðholti en báðar eru þær sjö vetra gamlar. Vala hlaut 8,80 fyrir sköpulag þar af 9,5 fyrir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,78 og í aðaleinkunn 8,79 þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja. Hún er ræktuð af Auði Stefánsdóttur sem er eigandi ásamt HARAS ehf, sýnandi er Helga Una Björnsdóttir. Vala er undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Gjöf frá Vindási.
Sparta fyrst yfir 9,00 fyrir hæfileika í ár
Spart hlaut þá hæstu hæfileikaeinkunn ársins, hingað til, þegar hún hlaut 9,10 fyrir hæfileika. Með 10,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk, greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Hún er undan Rauðskeggi frá Kjarnholtum og Spá frá Eystra-Fróðholti ræktandi hennar er Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir og Ársæll Jónsson sem er eigandi ásamt Önnu Fíu Finnsdóttur. Sýnandi á henni var Jón Ársæll Bergmann
Þorinn efstur á Hellu
Á sýningunni á Rangárbökkum við Hellu er efstur eftir daginn Þorinn frá Tunguhálsi II, 6.vetra gamall undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Freyju frá Tunguhálsi II sýndur af Teiti Árnasyni. Ræktandi hans og eigandi er Líney María Hjálmarsdóttir. Hlaut hann 8,41 fyrir sköpulag og 8,48 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,46.
Sörlastaðir 1.júní 2026
| Hross á þessu móti | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn | Sýnandi | Þjálfari |
| IS2019284981 Vala frá Vindási | 8.8 | 8.78 | 8.79 | Helga Una Björnsdóttir | |
| IS2019286184 Sparta frá Eystra-Fróðholti | 8.16 | 9.1 | 8.77 | Jón Ársæll Bergmann | |
| IS2020280600 Melrós frá Hemlu II | 8.69 | 8.66 | 8.67 | Helga Una Björnsdóttir | |
| IS2020281418 Selma frá Fákshólum | 8.51 | 8.41 | 8.45 | Helga Una Björnsdóttir | |
| IS2020287083 Helma frá Völlum | 8.61 | 8.34 | 8.43 | Jakob Svavar Sigurðsson | |
| IS2021286904 Skák frá Feti | 8.62 | 8.28 | 8.4 | Bylgja Gauksdóttir | |
| IS2022201666 Fjara frá Karlshaga | 8.13 | 8.49 | 8.37 | Brynja Kristinsdóttir | |
| IS2020188407 Stormur frá Kjarnholtum II | 8.69 | 8.15 | 8.34 | Árni Björn Pálsson | |
| IS2016201659 Sjöfn frá Aðalbóli 1 | 8.47 | 8.15 | 8.27 | Hinrik Þór Sigurðsson | |
| IS2020164201 Demantur frá Krónustöðum | 8.54 | 8.11 | 8.26 | Helga Una Björnsdóttir | |
| IS2020282868 Vaka frá Stórhólma | 8.35 | 8.16 | 8.23 | Árni Björn Pálsson | Artemisia Constance Bertus |
| IS2018286188 Díana frá Bakkakoti | 8.3 | 8.18 | 8.23 | Jón Ársæll Bergmann | |
| IS2021282867 Krafla frá Stórhólma | 8.54 | 8.05 | 8.22 | Árni Björn Pálsson | Artemisia Constance Bertus |
| IS2020286101 Ísabella frá Kirkjubæ | 8.44 | 7.95 | 8.12 | Hjörvar Ágústsson | |
| IS2020286904 Síða frá Feti | 8.39 | 7.94 | 8.1 | Ólafur Andri Guðmundsson | |
| IS2021288215 Salka frá Hrafnkelsstöðum 1 | 8.23 | 7.95 | 8.05 | Þorvaldur Logi Einarsson | |
| IS2017125087 Hnjúkur frá Meðalfelli | 8.06 | 7.99 | 8.02 | Hafþór Hreiðar Birgisson | |
| IS2017225197 Vorsól frá Mosfellsbæ | 8.07 | 7.98 | 8.01 | Jón Ársæll Bergmann | |
| IS2020256464 Jóney frá Hæli | 8.49 | 7.72 | 7.99 | Jakob Svavar Sigurðsson | |
| IS2021284863 Hviða frá Efra-Hvoli | 8.02 | 7.86 | 7.92 | Lea Schell | |
| IS2022125283 Víkingur frá Reykjavík | 7.97 | 7.83 | 7.88 | Róbert Petersen | Sveinn Sölvi Petersen |
| IS2021180677 Fengur frá Forsæti | 8.12 | 7.69 | 7.84 | Þorvaldur Logi Einarsson | |
| IS2022266261 Lína frá Yztafelli | 8.19 | 7.62 | 7.82 | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | |
| IS2022258855 Þrá frá Sólheimum | 8.31 | 7.52 | 7.79 | Jón Ársæll Bergmann | Jón Ársæll Bergmann |
| IS2021186748 Glæðir frá Bjálmholti | 8.56 | 7.38 | 7.79 | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund |
| IS2017256097 Yrja frá Miðgili | 8.16 | 7.57 | 7.78 | Árný Oddbjörg Oddsdóttir | |
| IS2019184677 Fjarki frá Álfhólum | 8.06 | 7.48 | 7.68 | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund |
| IS2019182098 Leggur frá Lauftúni | 8.29 | 7.32 | 7.66 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Lilja Sigurðardóttir |
Rangárbakkar 1.júní 2026
| Hross á þessu móti | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn | Sýnandi | Þjálfari |
| IS2020157995 Þorinn frá Tunguhálsi II | 8.41 | 8.48 | 8.46 | Teitur Árnason | |
| IS2020256430 Þrá frá Hæli | 8.3 | 8.34 | 8.33 | Viðar Ingólfsson | |
| IS2019258099 Vigdís frá Bæ | 8.63 | 8.07 | 8.27 | Viðar Ingólfsson | |
| IS2021284011 Yrsa frá Ytri-Skógum | 8.39 | 8.16 | 8.24 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2022101834 Fannar frá Hagabakka | 8.16 | 8.28 | 8.24 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Gústaf Ásgeir Hinriksson |
| IS2021187841 Sjón frá Kálfhóli 2 | 8.61 | 8.03 | 8.24 | Þorgeir Ólafsson | |
| IS2021284154 Gjóska frá Efstu-Grund | 8.31 | 8.18 | 8.23 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2022125599 Kjarval frá Hafnarfirði | 8.52 | 7.97 | 8.16 | Þorgeir Ólafsson | |
| IS2017281114 Blæja frá Holtsmúla 1 | 8.34 | 8.05 | 8.16 | Viðar Ingólfsson | |
| IS2020187546 Náttfari frá Kvíarhóli | 8.34 | 8.05 | 8.16 | Viðar Ingólfsson | Viðar Ingólfsson |
| IS2021277064 Nótt frá Karlsbrekku | 8.16 | 8.12 | 8.13 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2021256112 Hnota frá Hofi | 8.41 | 7.85 | 8.05 | Þorgeir Ólafsson | Ásdís Brynja Jónsdóttir |
| IS2022157995 Þórir frá Tunguhálsi II | 8.1 | 7.97 | 8.02 | Teitur Árnason | |
| IS2020256112 Hylling frá Hofi | 7.97 | 8.02 | 8.01 | Þorgeir Ólafsson | Ásdís Brynja Jónsdóttir |
| IS2021280503 Brá frá Hemlu I | 8.38 | 7.78 | 7.99 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2017286233 Þjóðhátíð frá Hellu | 8.4 | 7.71 | 7.95 | Helgi Þór Guðjónsson | |
| IS2021157897 Nökkvi frá Tunguhálsi II | 8.31 | 7.68 | 7.9 | Teitur Árnason | |
| IS2022165980 Kristall frá Króksstöðum | 8.06 | 7.81 | 7.9 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Gústaf Ásgeir Hinriksson |
| IS2021284437 Kynorka frá Svanavatni | 7.88 | 7.63 | 7.72 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2019201002 Koldís frá Korpu | 7.77 | 7.66 | 7.7 | Þorgeir Ólafsson | Ásdís Brynja Jónsdóttir |
| IS2020284302 Kátína frá Búðarhóli | 8.22 | 7.37 | 7.67 | Hlynur Guðmundsson | |
| IS2022284012 Elja frá Ytri-Skógum | 7.89 | 7.45 | 7.6 | Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir |
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta
Nýtt diplómanám í tamningafræði við LbhÍ