Brynja hlaut 9,35 fyrir hæfileika

  • 11. júní 2026
  • Fréttir

Brynja frá Nýjabæ og Brynja Kristinsdóttir. Ljósmynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Hæsti hæfileikadómur sem hryssu hefur hlotnast

Á kynbótasýningu á Rangárbökkum í gær gerðist sá stórviðburður að Brynja frá Nýjabæ hlaut þann hæsta hæfileikadóm sem hryssa hefur fengið og næst hæsta hæfileikadóm sem gefinn hefur verið en þann hæsta hlaut Sindri frá Hjarðartúni þegar hann hlaut 9,38 á Landsmóti árið 2022.

Hlaut Brynja fyrir hæfileika 9,35 með einkunnina 10,0 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir brokk, skeið, fegurð í reið og fet. Fyrir sköpulag hlaut Brynja 8,19 og í aðaleinkunn 8,94.

Brynja var sýnd af nöfnu sinni Brynju Kristinsdóttur, ræktandi er Heiða Dís Fjeldsteð en hún er eigandi ásamt Flosa Ólafssyni, Brynju Kristinsdóttur og Kristjáni Fjeldsteð. Brynja er 6.vetra gömul undan Gljátoppi frá Miðhrauni sem er undan Álfarni frá Syðri-Gegnishólum og Sölku frá Stuðlum. Móðir hennar er Gunnrún frá Bæ 2 sem er undan Aðli frá Nýjabæ og Bliku frá Nýjabæ.

Allar kynbótasýningar eru í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og þar er einnig hægt að horfa nú á þessa sýningu sem aðrar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link