Blíða frá Bergi nú hæst dæmda hryssa frá upphafi
Þorgeir heldur í Blíðu að lokinni sýningu
Það er í nógu að snúast í hrossaræktinni þessa daganna og hver gæðingurinn á fætur öðrum kemur fram á kynbótasýningum víðs vegar um landið. Allar eru sýningarnar sýndar í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Nú í morgunhollinu á Rangárbökkum við Hellu gerðist það að Blíða frá Bergi varð hæst dæmda hryssa frá upphafi. Í síðustu lék Hugsýn frá Ketilsstöðum þann sama leik ásamt sýnanda sínum Elinu Holst þegar hún hlaut 9,01 í aðaleinkunn.
Blíða var sýnd af Þorgeiri Ólafssyni og er sjö vetra gömul ræktuð af þeim Önnu Dóru Markúsdóttur og Jóni Bjarna Þorvarðarsyni á Bergi. Hlaut hún 8,69 fyrir sköpulag með einkunnina 9,0 fyrir höfuð, háls,herðar og bóga, bak og lend og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hún 9,20 með 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, skeið, fet og hægt tölt.
Blíða er undan Sleipnisbikarhafanum Skýr frá Skálakoti en sá er undan Sóloni frá Skáney og Vök frá Skálakoti. Móðir Blíðu er Rót frá Bergi sem er 1.verðlauna hryssa undan Kvisti frá Skagaströnd og Hríslu frá Naustum.
Tinni slær heimsmet
Þriðju Skeiðleikar Skeiðfélagsins í kvöld