Aspar Hlaut þrjár tíur í hæfileikadómi

  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Aspar frá Hjarðartúni og Þorgeir Ólafsson. Ljósmynd: Nicki Pfau

Fyrsti stóðhesturinn til þess að hljóta 10 fyrir tölt og brokk

Það var mögnuð sjón að sjá Aspar frá Hjarðartúni á kynbótabrautinni á Hellu nú rétt í þessu þar sem hann og Þorgeir Ólafsson áttu hreint magnaða sýningu. Uppskeran var eftir því og hlaut hann m.a. þrjár tíur í hæfileika dómi; fyrir tölt, brokk og hægt tölt. Þá hlaut hann 9,5 fyrir greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

Fyrir hæfileika gerir það 8,74 en í hæfileika einkunn án skeiðs gerir það 9,42. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,54 þar sem hæst ber 9,5 fyrir prúðleika og 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og samræmi.

Aspar varð með þessu fyrsti stóðhesturinn til þess að hljóta bæði tíu fyrir tölt og brokk en eina hrossið sem það hafði hlotið hingað til er Katla frá Ketilsstöðum. Hann er átta vetra gamall undan Boða frá Breiðholti, Gbr og Hrund frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandi hans er Óskar Eyjólfsson en eigendur eru Hjarðartún ehf, Birgitta Bjarnadóttir og Þorgeir Ólafsson.

Vert er að minnast á að allar kynbótasýningar á Íslandi eru í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og geta áskrifendur horft á allar sýningar þar einnig eftirá.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link