Hæst dæmda hryssa allra tíma fyrir sköpulag
Þórdís frá Flagbjarnarholti hlaut 9,04 fyrir sköpulag, mynd frá árinu 2025
Það er ekkert lát á því að úrvals kynbótagripir komi fram á kynbótasýningum á Íslandi. Þessi misserin eru kynbótahross sýnd þremur stöðum, á Hólum í Hjaltadal, Rangárbökkum við Hellu og Sörlastöðum í Hafnarfirði.
Úrvalsgripir á Hólum
Á Hólum í gær kom fram sú hryssa sem hæstan dóm hefur hlotið fyrir sköpulag frá upphafi kynbótadóma, Þórdís frá Flagbjarnarholti. Hlaut hún 9,04 í heildareinkunn fyrir sköpulag. Hlaut hún 9,5 fyrir samræmi og 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend, fótagerð, hófa og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,42 og í aðaleinkunn 8,64. Þórdís er undan Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandi og eigandi er Jaap Groven en sýnandi var Þórarinn Eymundsson.
Þá sýndi Þórarinn einnig tvo fimm vetra gamla stóðhesta undan Þráni frá Flagbjarnarholti sem eru þeir tveir hæst dæmdu í sínum aldursflokki sem sakir standa. Það var Þróttur frá Hæli sem hlaut í aðaleinkunn 8,77. Hlaut hann 8,95 fyrir hæfileika með 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fet og 8,41 fyrir sköpulag. Ræktandi hans og eigandi er Þórður Njálsson og er móðir Þróttar, Örk frá Lynghóli. Þá hlaut Hengill frá Hestkletti 8,76 í aðaleinkunn með 8,99 fyrir sköpulag þar af 9,5 fyrir samræmi og hófa, 9,0 fyrir háls,herðar og bóga og bak og lend.

Hengill frá Hestkletti hlaut 8,99 fyrir sköpulag og í aðaleinkunn 8,76
Flugvakrir gæðingar
Hæst dæmda hross gær dagasins á Sörlastöðum var stóðhesturinn Kopar frá Laugarbökkum sem er fimm vetra gamall undan Draupni frá Stuðlum og Blökk frá Laugarvöllum. Ræktandi og eigandi er Kristinn Valdimarsson og sýnandi var Janus Halldór Eiríksson. Hlaut Kopar 8,49 fyrir sköpulag og 8,60 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir skeið er aðaleinkunn hans 8,56.
Á Rangárbökkum var það Snörp frá Húsanesi sem hæstan dóm hlaut í gær en hún er fimm vetra gömul undan Spuna frá Vesturkoti og Fúlgu frá Húsanesi. Ræktandi hennar og eigandi er Sigurgeir Kristinsson en sýnandi Þorgeir Ólafsson. Hlaut Snörp 8,05 fyrir sköpulag og 8,67 fyrir hæfileika í aðaleinkunn 8,45. Þar bar hæst 9,0 fyrir brokk, skeið og samstarfsvilja.
Sýningar halda áfram á þessum stöðum á dag og lýkur Hólasýningunni á fimmtudag með yfirlitssýningu en á föstudag á Rangárbökkum og Sörlastöðum. Allt í beinni á EiðfaxaTV.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta