Framboð til stjórnar LH

  • 28. september 2016
  • Fréttir
Frestur til framboðs stjórnar LH til 30.sept.

Athygli er vakin á því að frestur til framboðs stjórnar Landssambands hestamannafélaga rennur út föstudaginn 30.september.

Skv. Lögum og reglum LH; 
„1.4.1 Kosning stjórnar
Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH.  Tilkynning um framboð til embættis formanns eða til stjórnar LH skal berast kjörnefnd minnst hálfum mánuði fyrir landsþing LH.“

Tilkynningar um framboð skulu berast til Kjörnefndar, hana skipa;

Margeir Þorgeirsson – [email protected] 
Helga Claessen – [email protected] 
Þórður Ingólfsson – [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link