Framtíð Landsmóta rædd
Landssamband hestamannafélaga og Bændasamtök Íslands stóðu fyrir vinnufundi um framtíð Landsmóta hestamanna í október. Markmið vinnufundarins var að félagsmenn kæmu saman til að móta stefnu varðandi þessa framtíð. Hópnum var skipt upp í átta umræðuhópa og var viðfangsefnunum skipt í fjóra hluta: tilgangur Landsmóta, keppendur á Landsmótum, dagskrá og afþreying á Landsmótum, og umgjörð Landsmóta.
„Þegar umræðan kom að keppendum á Landsmótum voru flestir sammála því að þrengja þyrfti þátttökurétt þannig að hrossum fækkaði bæði í kynbótasýningu og í keppni. Hrossin á Landsmóti ættu einungis að vera þau bestu á landinu, rjóminn af íslenska hestinum. Hvernig þetta yrði framkvæmt voru skiptar skoðanir um. Flestir hópar vildu að þátttakendur í A og B flokki yrðu teknir inn í gegnum stöðulista eins og gert er í tölti og skeiði. Þó vildi fólk halda í félagaréttinn að eitthverju leyti.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands