Framundan í vikunni
Það er nóg um að vera í hestamennskunni um þessar mundir og ætlar Eiðfaxi að setja niður helstu viðburði sem eru framundan í vikunni. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það – [email protected]
Mánudagur 4. mars
- Gæðingatölt Grana á Mið-Fossum
Þriðjudagur 5. mars
- Suðurlandsdeildin byrjar en keppt verður í parafimi og slaktaumatölti í Rangárhölinni á Hellu.
Miðvikudagur 6. mars
- Meistaradeild KS heldur áfram en keppt verður í fjórgangi.
Fimmtudagur 7. mars
- Annað mót vetrarins í Vilko mótaröð Neista fer fram keppt verður í fjórgangi í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.
- 1. deildin heldur áfram en keppt verður í gæðingalist í Samskipahöllinni
Föstudagur 8. mars
- Líflandsdeild Léttis heldur áfram en keppt verður í fimmgangi í Reiðhöll Léttis.
- Keppni heldur áfram í Uppsveitadeild Flúðasveppa og Jökuls. Keppt verður í fimmgangi í reiðhöllinni á Flúðum.
Laugardagur 9. mars
- KB mótaröðin heldur áfram en keppt verður í fimmgangi í Faxaborg í Borgarnesi.
- Hestamannafélagið Hörður heldur sitt þriðja vetrarmót.
- Meistaradeild ungmenna og Top Reiter heldur áfram en keppt verður í gæðingalist í HorseDay höllinni.
- Annað mótið í B.E. æskulýðsdeild Léttis en keppt verður í fimmgangi í reiðhöll Léttis.
- Annað vetrarmót Jökuls verður í reiðhöllinni á Flúðum en keppt verður í fjórgangi.
Sunnudagur 10. mars
- Meistaradeild Líflands og æskunnar fer fram í Harðarhöllinni í Mosfellsbæ en krakkarnir munu keppa í gæðingalist.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH