Framundan í vikunni

  • 6. apríl 2026
  • Fréttir
Það er nóg um að vera í hestaheiminum þessa daganna

Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.

Þriðjudagur 7. apríl

  • Síðasta mótið í Suðurlandsdeild Eques. Keppt verður í tölti og skeiði í gegnum höllina. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.

Fimmtudagur 9. apríl

  • Blue Lagoon mótaröðin heldur áfram í Samskipahöllinni en keppt verður í slaktaumatöltið Mótið er sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
  • Komið er að töltkeppni 1. deildarinnar og er mótið sýnt í beinni á EiðfaxaTV. Þetta er næst síðasta mótið í 1. deild Hringdu en á lokamótinu munu við draga út í áskriftarleik Ástundar og Eiðfaxa.

Föstudagur 10. apríl

  • Tölt í Samskipadeild, áhugamannadeild Spretts. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
  • Lokamótið í Uppsveitadeild Flúðasveppa en þá er keppt í tölti og skeiði í gegnum húsið.

Laugardagur 11. apríl

  • Meistaradeild Líflands og æskunnar en keppt verður í tölti T1 og gæðingaskeiði. Mótið er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
  • Áhugamannadeild Norðurlands en keppt verður í tölti í reiðhöllinni á Akureyri. Mótið er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
  • Keppt í tölti í Mótaröð Glaðs.

Sunnudagur 12. apríl

  • Gæðingakeppni í Blue Lagoon mótaröðinni. Mótið er sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
  • Skeiðmót Meistaradeild KS á Sauðárkróki. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
  • Tölt og skeið í Meistaradeild ungmenna og TopReiter
  • Þriðja vetrarmót Jökuls á Flúðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link