Fréttir frá Fagráði í hrossarækt
Hrossaræktarráðunautur BÍ, Guðlaugur Antonsson, sendi eftirfarandi upplýsingar varðandi kynbótasýningar ársins:
Gjaldskrá fyrir kynbótasýningar 2012
Fullur dómur Sköpulags-/reiðdómur
Búnaðarsambönd 8.900 6.385
Bændasamtök Íslands 4.080 3.275
Virðisaukaskattur 3.310 2.463
Vallarsvæði 2.210 1.377
Samtals: 18.500 13.500
Reglur varðandi stóðhesta með erfðagalla
Ekki er vilji í fagráði til banna notkun slíkra gripa á Íslandi, jafnvel þó ljóst sé að þeir fengju víðast hvar ekki notkunarleyfi á erlendri grund. Fagráð er sammála um að vekja skuli meiri athygli á slíkum gallagripum og stuðla með því að minni notkun þeirra, enda eitt af ræktunarmarkmiðum okkar heilbrigður og frjósamur hestur.
Frá vorinu hefur því verið ákveðið að eftirfarandi regla gildi:
Hestar með eistnagalla sem jafngilda rauðu T eða með rautt S vegna spatts verði ekki verðlaunaðir á kynbótasýningum né heldur hljóti þeir þátttökurétt á landsmótum í einstaklingssýningum kynbótahrossa.
Þeir eistnagallar sem jafngilda rauðu T eru eftirfarandi:
- Stinnleiki eistna er metinn í þrjá flokka. Við stinnleika 3 er eistað lint og mjúkt og telst þá alvarlegur galli.
- Snúningur á eistum. Ef bæði eistu eru snúin um 180°.
- Ekkert eða aðeins eitt eista.
- Bæði eistu óeðlilega smá eða 50% munur á stærð (rúmmáli) eistna.
- Heildarbreidd pungs TSW undir 8 sm.
- Þarmar finnast í pung.
Ef einhverjar af ofantöldum athugasemdum eiga við, hefur eigandi hestsins tvær vikur til að hnekkja áliti dómara með skriflegum úrskurði dýralæknis sýnist honum vafi leika á réttmæti athugasemdarinnar.
Ef ekki næst að skoða og mæla eistu á fullnægjandi hátt, þarf að skila dýralæknisvottorði um eistna heilbrigði gripsins. Að öðrum kosti er sett athugasemd í WorldFeng um að heilbrigði hafi ekki verið vottað af dómnefnd.
Upplestur dómabreytinga á yfirlitssýningum
Niðurstaða fagráðs er að fleiri ókostir en kostir fylgi slíku fyrirkomulagi, einkum tefji það sýningarnar ef knapar bíða á brautarendum eftir mögulegum breytingum. Einkunnir skuli því ekki lesnar upp fyrr en eftir að hross eru farin úr braut.
Áverkar og áverkaskráning
Fram hafa komið óskir um að allur listi yfir áverkaskráningar sé birtur. Fagráð er samstíga í að láta þá birtingu sem nú þegar hefur átt sér stað duga að sinni. Nánari útfærsla verði rædd á haustfundum hrossaræktenda.
Hinsvegar hefur verið ákveðið að kynbótahross á fjórðungs- og landsmótum hljóti samskonar skoðun “Klár í keppni” fyrir sýningu eins og tíðkast í gæðingakeppni mótanna. Eftir sýningu verði um að ræða hefðbundna skoðun áverka á kynbótahrossum.
Þá hefur verið ákveðið að hross með áverkastig 2 í dómi hljóti hvorki dómsniðurstöður fyrir hæfileika né verðlaunun. Ef áverki á stigi 2 verður á yfirlitssýningu hlýtur það hross ekki mögulega hækkun einkunnar né verðlaunun.
Afmörkun brautar
Í fyrra var gert átak í samræmingu brautaraðstæðna á kynbótasýningum. Það sem lagt var þar upp með var einkum þrennt:
- 300 metra vel afmörkuð bein braut.
- 200 metra afmarkað sprettfæri.
- 50 metrar í báðum endum til viðsnúninga.
Nú hefur verið ákveðið að merkja einnig 100 metra kafla fyrir miðri braut þar sem fetsýningar skulu að öllu jöfnu fara fram.
Talsverð umræða varð á haustfundum hrossaræktenda og öðrum fundum í vetur um túlkun vinnureglunnar “Ef hrossi er riðið hvað eftir annað lengra en afmörkun brautar segir til um, getur það haft áhrif á vilja/geðslags einkunn” Þykir ýmsum sú vinnuregla ekki túlkuð nógu stíft af dómnefndum og hafi einstaka knapar komist upp með að ríða ítrekað lengra en afmörkuð braut segir til um, án þess að á því hafi verið tekið.
Fagráð vill beina því til dómara að þeir verði betur á tánum hvað varðar þetta atriði og einnig að þjálni sé metin betur að verðleikum í einkunn fyrir vilja og geðslag.
Einstaklingssýning kynbótahrossa á landsmóti 2012
Fagráð hefur samþykkt að einstaklingssýnd kynbótahross verði dæmd mánudag, þriðjudag og miðvikudag á beinni braut á kynbótavelli við félagsheimili Fáks, riðnar verði að hámarki átta ferðir í stað tíu. Dómur á feti miðist við merktan 100 metra kafla næst dómhúsi.
Á miðvikudagskvöldi og á fimmtudegi fari fram á sama velli hefðbundin yfirlitssýning kynbótahrossa þar sem riðnar verði allt að sex ferðir svo sem vant er.
Á föstudegi verði sýnd á aðalvelli til kynningar þau einstaklingsdæmdu hross sem ekki ná verðlaunasætum, þar verði þau fimm í holli og riðnir þrír hringir á hringvelli og ein ferð fram og til baka á beinni braut.
Á laugardegi verði verðlaunaafhending 10 efstu hrossa í hverjum flokki einstaklingssýndra hrossa. Fyrst verði hross í sætum 6-10 sýnd saman, þá sýnd hross í 1-5 sæti og loks fari fram verðlaunaafhending þessara 10 efstu.
Stefnt skal á prófun nýja fyrirkomulagsins og tímamælingu á vallarsvæðinu í Víðidal nokkru fyrir mótið. Mikilvægt er fara yfir alla verkferla kynbótahluta landsmótsins og skipuleggja framkvæmdina í þaula.
Kynbótasýning í Víðidal
Óskir hafa komið fram um að kynbótasýning verði haldin í Víðidal í Reykjavík á komandi vori. Í viðræðum hrossaræktarráðunauts og formanns fagráðs við fulltrúa Búnaðarsambands Suðurlands og Hrossaræktarsambands Suðurlands kom fram að þeir telja ekki ástæðu til að breyta útgefinni sýningaáætlun fyrir árið 2012.
Fagráð ákvað að fara að þeirra tillögum, skv. venju um tillögur sýningahaldara og breyta ekki áður útgefinni dagskrá og verði því ekki stefnt á kynbótasýningu í Víðidal á þessu vori.
Fóta- og beislabúnaður í kynbótasýningum
Engar breytingar hafa verið gerðar á þessum atriðum í ár.
Upprifjun nokkurra gildandi reglna um sýningar
- Blóðsýni þarf að hafa verið tekið úr stóðhestum 5 vetra og eldri.
- Röntgenmyndir (spattmyndir) þurfa að hafa verið teknar af stóðhestum 5 vetra og eldri. Aflestur þarf að hafa farið fram og niðurstöður skráðar í WorldFeng.
- DNA-sýni þarf að hafa verið tekið úr öllum stóðhestum svo og foreldrum þeirra.
- Hægt er að láta sköpulagsdóm standa innan árs. Aðeins er þó um að ræða síðasta sköpulagsdóm úr fullum dómi
f.h. Fagráðs í hrossarækt
Guðlaugur V. Antonsson
Hrossaræktarráðunautur BÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH