Friðrik Már til starfa hjá RML

  • 13. nóvember 2023
  • Fréttir

Friðrik Már Sigurðsson er kominn til starfa hjá RML. Hann mun starfa sem fagstjóri á búfjárræktar- og þjónustusviði. Frá þessu greinir á vefsíðu RML nú í dag.

Hann verður í hlutastarfi nú í nóvember og desember en verður í 100% starfi frá og með janúar 2024. Aðalstarfsstöð hans verður á Hvammstanga.

Friðrik hefur háskólamenntun á sviði búvísinda og er með MPM í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Friðrik hefur víðtæka þekkingu á starfsumhverfi bænda. Hann er með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu m.a. úr kennslu, stjórnsýslu, verkefnastjórnun og ráðgjöf.
Síminn hjá Friðrik er 516-5022 og netfang fridrik(hjá)rml.is

Eiðfaxi óskar Friðriki velfarnaðar í starfi.

Friðrik Már Sigurðsson. Ljósmynd: aðsend

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar