Frjáls Gæðingakeppni og Töltkeppni
Frjáls gæðingakeppni og töltkeppni verður haldin í Rangárhöll á Hellu nk. laugardag 16. Apríl að er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rangárhöllinni:
“Laugardaginn 16.apríl í Rangárhöllinni á Hellu verður haldin frjáls gæðingakeppni sem verður nánar útlistuð í vikunni og svo tölt keppni með fimm dómurum, einn inná í einu(sem sagt hver ríður sitt prógram) og allir við alla. Nú er að taka daginn frá og mæta með sína bestu gæðinga. Þau tvö mót sem búin eru þ.e. fjórgangurinn sem Steingrímur Sigurðsson vann á Mídasi frá Kaldbak og fimmgangurinn sem Ísleifur Jónasson vann á Sval frá Blönduhlíð, bæði þessi mót tókust frábærlega og góð stemmning. Endilega fylgjast með því þetta verður stórsýning á stórkostlegum gæðingum þann 16.apríl.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH